Erlent

Hryðjuverkamaður dæmdur í lífstíðarfangelsi

Nígerískur karlmaður hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi en hann var fundinn sekur um að hafa reynt að sprengja breiðþotu í loft upp á jóladag árið 2009.

Hinn 25 ára gamli Umar Farouk Abdulmutallab hafði komið fyrir sprengju í nærbuxum sínum. Abdulmutallab misheppnaðist þó ætlunarverk sitt og hann brenndist illa eftir að sprengjan sprakk. Um 300 farþegar voru um borð í breiðþotunni.

Fjölskylda Abdulmutallab hefur biðlað til dómstóla í Bandaríkjunum að milda dóminn.

Al-Qaeda hefur lýst yfir ábyrgð á tilræðinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×