Erlent

Háværar kröfur um að forseta Þýskalands verði vikið frá störfum

Þýska stjórnarandstaðan gerir nú háværar kröfur um að Christian Wulff forseta Þýskalands verði vikið frá störfum.

Þessar kröfur koma í kjölfar þess að ríkissaksóknarinn í Hannover hefur farið fram á að forsetinn verði sviptur þeirri vernd sem hann hefur gegn málsóknum. Wulff hefur verið til rannsóknar um skeið en hann er grunaður um að hafa þegið mútur í starfi sínu.

Saksóknarinn segir að nýjar upplýsingar hafi komið fram í málinu sem geri það nauðsynlegt að kalla forsetann í yfirheyrslur.

Enginn í stjórn Angelu Merkel kanslara Þýskalands hefur viljað tjá sig um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×