Enski boltinn

TEAMtalk: Koma Gylfa til Swansea ein bestu viðskiptin í janúar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. Mynd/AFP
Fótboltavefmiðillinn TEAMtalk fékk í dag Nick Hext til að velja fjögur best heppnuðu félagsskiptin í janúarglugganum en glugginn lokaði eins og kunnugt er í gærkvöldi. Hext nefnir til fjögur félagsskipti og er koma okkar manns Gylfa Þórs Sigurðssonar til Swansea á þeim lista.

Queens Park Rangers á bestu kaupin en Nick Hext var mjög hrifinn á kaupum félagsins á þeim Bobby Zamora frá Fulham og Nedum Onuoha frá Manchester City. Hext nefndi síðan tvo lánsamninga, annarsvegar Gylfa sem kom til Swansea á láni frá Hoffenheim og hinsvegar Emmanuel Frimpong sem kom til Wolves á láni frá Arsenal.

„Íslenski landsliðsmaðurinn kostaði Hoffenheim 6,5 milljónir punda þegar hann kom frá Reading árið 2010. Það gekk ekki alveg upp hjá honum að vera miðjumaður í Þýskalandi en allir sem hafa séð hann undir stjórn Brendan Rodgers vita að þarna er hæfileikaríkur leikmaður á ferðinni. Gylfi hefur þegar sýnt hvað hann getur á Liberty Stadium og það er von á meiru á næstunni," segir Nick Hext um Gylfa.

Önnur félagsskiptablað sem komast á blað eru: Steven Pienaar (Tottenham til Everton á láni); Keith Andrews (Blackburn til West Brom á frjálsri sölu) og Landon Donovan (LA Galaxy til Everton á láni).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×