Enski boltinn

Draumabyrjun QPR dugði ekki til | Cisse skoraði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Djibril Cissé fagnar marki sínu í kvöld.
Djibril Cissé fagnar marki sínu í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Aston Villa og QPR skildu jöfn, 2-2, í Birmingham í kvöld eftir að gestirnir frá Lundúnum komust í 2-0 forystu strax í fyrri hálfleik.

Heiðar Helguson var ekki í leikmannahópi QPR vegna meiðsla og Rub Hulse, sem spilaði síðast í úrvalsdeildinni árið 2007, tók hans stöðu í sókninni þar sem flestir aðrir sóknarmenn QPR eru meiddir.

Djibril Cisse, sem var keyptur til QPR frá Lazio í gær, var hins vegar í byrjunarliðinu og spilaði við hllð Hulse í sókninni. Hann var aðeins ellefu mínútur að komast á blað en hann skoraði með laglegu skoti eftir að boltinn barst fyrir fætur hans í vítateignum.

Hann hefur því skorað í frumraun sinni með öllum sínum félögum í ensku úrvalsdeildinni en hann gerði það með bæði Liverpool og Sunderland á sínum tíma.

Stephen Warnock kom svo QPR í 2-0 með ótrúlegu sjálfsmarki þar sem hann skallaði boltann í markið þó svo að enginn leikmaður QPR hafi verið nálægt honum.

Aston Villa komst þó betur inn í leikinn eftir þetta og náði að minnka muninn með mörkum Darren Bent í lok fyrri hálfleiks. Villa var svo miklu sterkari aðilinn í seinni hálfleik og uppskar mark á 78. mínútu er Charles N'Zogbia skoraði. Villa sótti til sigurs á lokakaflanum en allt kom fyrir ekki og jafntefli niðurstaðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×