John Terry er bálreiður og í sárum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. febrúar 2012 22:00 John Terry að rífast við Tommy Smith, leikmann QPR. Nordic Photos / Getty Images
Enskir fjölmiðlar segja að John Terry sé í sárum eftir að stjórn enska knattspyrnusambandsins ákvað í morgun að taka af honum fyrirliðaband enska landsliðsins. Er þetta tímabundið úrræði, þar til að niðurstaða í réttarhöldum Terry fæst en hann er sakaður um að hafa verið með kynþáttaníð í garð Anton Ferdinand, leikmann QPR, í leik gegn Chelsea í haust. Terry er þó enn fyrirliði Chelsea en það tilkynnti Andre Villas-Boas, stjóri liðsins, í dag. Samkvæmt enska blaðinu The Guardian mun Terry ekki einungis vera í sárum heldur einnig bálreiður út í enska knattspyrnusambandið. Hvort að hann muni áfram gefa kost á sér í liðið verður að koma í ljós en enska sambandið segir hann enn vera gjaldgengan. Þetta er í annað sinn sem að fyrirliðastaðan er tekin af Terry. Í hitt skiptið var það vegna framhjáhalds hans með fyrrverandi maka Wayne Bridge, fyrrum leikmanns Chelsea og enska landsliðsins. Bridge hætti að gefa kost á sér í enska landsliðið vegna málsins. Terry neitaði ávallt sök í málinu, rétt eins og hann hefur gert nú. Eftir að fyrirliðabandið var tekið af honum í fyrra skiptið hélt hann engu að síður áfram að spila með liðinu sem óbreyttur leikmaður. Í grein The Guardian er því einnig haldið fram að Terry hafi gert sér grein fyrir því í aðdraganda æfingaleiks Englands og Svíþjóðar í nóvember síðastliðnum að það væru ekki allir liðsfélagar hans í enska landsliðinu ánægðir með hans framgöngu, sér í lagi þeir leikmenn sem eru dökkir á hörund. Uppákoman með Ferdinand hafi veikt stöðu hans í hópnum til muna. Rio Ferdinand hefur lýst því yfir að hann hafi ekki áhuga á að taka aftur við fyrirliðastöðu enska landsliðsins. Talið er líklegast að Steven Gerrard verði gerður að fyrirliða nú.
Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti 42 ára aldursmunur á keppendum í 1500 metra hlaupi kvenna Sport Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira