Ferguson: Áttum að fá fjórar vítaspyrnur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. febrúar 2012 17:45 Ferguson fórnar höndum á hliðarlínunni á Stamford Bridge í gær. Nordic Photos / Getty Images
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, var ósáttur með frammistöðu annars aðstoðardómarans í 3-3 jafntefli liðsins gegn Chelsea í gær. Liðsmenn United náðu að snúa því sem virtist töpuðum leik í jafntefli gegn Chelsea í gær. Þremur mörkum undir stefndi allt í stórsigur Chelsea. Tvö mörk úr vítaspyrnum og skallamark Javier Hernandez björguðu stigi fyrir gestina. Þrátt fyrir tvær vítaspyrnur í þágu síns liðs taldi Ferguson að vísa hefði átt Gary Cahill, varnarmanni Chelsea, af velli í fyrri hálfleik. Þá virtist enski landsliðsmaðurinn brjóta á Danny Welbeck sem var að sleppa í gegn. „Þessi sami aðstoðardómari dæmdi víti á okkur gegn Liverpool í fyrra þrátt fyrir að vera í um 40 metra fjarlægð," sagði Ferguson og var hneykslaður á ákvörðun aðstoðardómarans að lyfta ekki flaggi sínu. Ferguson taldi að vísa hefði átt Cahill af velli fyrir brotið en viðurkenndi þó að líklega hefði brotið átt sér stað utan teigs. „Ég kenni ekki Howard Webb (dómara leiksins) um. Hann þurfti aðstoð í þetta skiptið en fékk hana ekki," segir Ferguson sem sagði vítaspyrnurnar tvær sem hans menn fengu hafa verið réttmætar. „En vítaspyrnurnar hefðu átt að vera fjórar," sagði Ferguson sem leit á niðurstöðuna sem tvö stig töpuð í stað þess eina sem þeir fengu út úr leiknum. „Auðvitað eru þetta tvö stig töpuð en það er á hreinu að liðsmenn Manchester City hafa ekki haft gaman af að fylgjast með hvernig við brugðumst við í þessum leik," sagði Skotinn.
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira