Markalaust á Anfield 6. febrúar 2012 16:14 Suarez kemur af bekknum. Hann var heppinn að fá ekki að líta rauða spjaldið fimm mínútum síðar.
Það var lítið um fín tilþrif í leik Liverpool og Tottenham í kvöld. Leikurinn olli miklum vonbrigðum og endaði með leiðinlegu, markalausu jafntefli. Luis Suarez byrjaði á bekknum en hann hefur nú tekið út átta leikja bannið sem hann fékk fyrir kynþáttaníð í garð Patrice Evra, leikmanns Man. Utd. Harry Redknapp, stjóri Spurs, var síðan fjarri góðu gamni þar sem fluginu hans til Liverpool var frestað. Fyrri hálfleikur var lítið fyrir augað og flestir fengir þegar flautað var til leikhlés. Helst bar til tíðinda í hálfleiknum að köttur hljóp inn á völlinn og þurfti að stöðva leik um tíma vegna þessa enda var kötturinn ekkert spenntur fyrir því að fara af vellinum. Fátt var um færi framan af síðari hálfleik. Þegar 25 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma kom Luis Suarez loks af bekknum. Hans fyrsti leikur fyrir Liverpool síðan á annan dag jóla. Suarez var aðeins fimm mínútur að næla sér í gult spjald. Hann sparkaði þá fast í maga Scott Parker er hann ætlaði að sparka í boltann. Óvart sögðu flestir en margir vildu þó hreinlega fá rautt á Suarez enda leit þetta afar illa út. Sex mínútum fyrir leikslok fékk Gareth Bale besta færi leiksins. Rangstöðugildra Liverpool brást og Bale komst einn gegn Pepe Reina. Bale ætlaði að setja hann milli fóta Reina en Spánverjinn sá við honum. Illa farið með gott færi hjá Bale. Leikurinn opnaðist loksins þarna því mínútu síðar fékk Suarez dauðafæri. Skalla rétt fyrir utan markteig en hann stangaði knöttinn beint í fangið á Brad Friedel. Meira gerðist ekki í þessum slappa og hundleiðinlega leik.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira