Wenger: Ég þarf ekki að réttlæta hverja einustu ákvörðun Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. janúar 2012 09:30
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segist ekki þurfa að réttlæta ákvörðun sína um að skipta Alex Oxlade-Chamberlain af velli fyrir Rússann Andrei Arshavin í 2-1 tapi gegn Manchester United í gær. Skipting vakti hörð viðbrögð meðal fjölmargra stuðningsmanna Lundúnarliðsins og virtist fyrirliðinn Robin van Persie bæði undrandi og ósáttur við skiptinguna. Oxlade-Chamberlain hafði verið líflegur í liði Arsenal og meðal annars lagt upp jöfnunarmark liðsins um miðjan síðari hálfleik. Leikurinn virtist vera að snúast á sveif með heimamönnum þegar Englendingnum unga var skipt útaf við mikil mótmæli stuðningsmanna Arsenal. Markaskorari og fyrirliði Arsenal, Robin van Persie, leit í átt að varamannabekk Arsenal og virtist muldra „nei" þegar hann áttaði sig á skiptingunni sem átti sér stað. „Ég skil vel að stuðningsmennirnir séu ósáttir við skiptinguna, sérstaklega í ljósi þess að hún virkaði ekki," sagði Wenger við blaðamenn að leik loknum. „En það þýðir líka að ég tók rétta ákvörðun fyrir leikinn," sagði Wenger um val sitt á byrjunarliðinu. Arshavin hefur fallið í áliti hjá stuðningsmönnum Arsenal undanfarin misseri og valdið vonbrigðum með frammistöðu sinni. Hann sýndi skelfilegan varnarleik í aðdraganda sigurmarks Manchester United.„Hef framkvæmt 50 þúsund skiptingar" „Oxlade-Chamberlain var farinn að þreytast, farinn að teygja á kálfunum enda ekki vanur þessari ákefð," sagði Wenger um Englendinginn sem var í fyrsta sinn í byrjunarliði í ensku úrvalsdeildinni. „Arshavin er fyrirliði rússneska landsliðsins. Þarf ég að réttlæta þá ákvörðun að skipta 18 ára leikmanni af velli sem er að spila sinn annan eða þriðja leik? Reynum að sjá hlutina í réttu ljósi. Ég verð að standa með skiptingum mínum. Ég hef starfað sem knattspyrnustjóri í 30 ár og framkvæmt 50 þúsund skiptingar. Þarf ég að réttlæta hverja einustu? Nei, ég þarf ekki að útskýra fyrir ykkur hverja einustu skiptingu," sagði Frakkinn sem stýrði liði sínu í þriðja tapleiknum í deildinni í röð. Rúm fjögur ár eru síðan það gerðist síðast hjá Arsenal.Neville las Arshavin pistilinn Sparkspekingur Sky-sjónvarpsstöðvarinnar og fyrrum leikmaður Manchester United, Gary Neville, átti ekki í vandræðum með að lýsa sinni skoðun á málinu og tók Arshavin sérstaklega fyrir. „Maður vill aldrei gagnrýna leikmenn en hann (Arshavin) virðist hafa minnstan áhuga á að spila knattspyrnu af öllum leikmönnunum í deildinni. Honum líkar ekki veðrið. Honum líkar ekki við kvenfólkið. Ég held að hann vilji fara aftur til Rússland. Drífðu þig heim. Stuðningsmenn Arsenal vilja ekki sjá hann meir," sagði Neville um Arshavin sem hefur verið í herbúðum Lundúnarliðsins í þrjú ár. Þá bætti Neville við að viðbrögð van Persie væru ekki til þess fallin að gera starf Wenger auðveldara. „Þegar fyrirliðinn bregst svona við þá áttu við vandamál að stríða," sagði Neville um viðbrögð Hollendingsins.Wenger: Ekki einum leikmanni að kenna „Við vinnum og töpum sem lið. Viltu að ég kenni einum leikmanni um ófarir okkar? Það geri ég ekki. Hafi ég gert mistök þá biðst ég afsökunar," sagði Wenger og bætti við: „Við hefðum allt eins getað tapað með Oxlade-Chamberlain á vellinum. United eru alltaf hættulegir á vængjunum. En fólk greiðir fyrir miðana sína og hefur fullan rétt á að segja hug sinn. Við stjórnum ekki hegðun fólks. En það þýðir ekki að fólkið hafi alltaf rétt fyrir sér," sagði Wenger. Arsenal situr eftir tapið í 5. sæti deildarinnar með 36 stig. Fjögur efstu sætin gefa sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð en Chelsea situr í 4. sætinu með 41 stig. Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira