Evra spilar líklega gegn Liverpool Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. janúar 2012 14:15 Luis Suarez verður vitaskuld í banni um helgina. Nordic Photos / Getty Images
Patrice Evra mun líklega spila með Manchester United gegn Liverpool um helgina og verður þá væntanlega áfram fyrirliði liðsins í fjarveru Nemanja Vidic. United mætir í heimsókn á Anfield um helgina en liðin eigast þá við í ensku bikarkeppninni. Verður það í fyrsta sinn sem United spilar þar síðan að mál Evra og Luis Suarez kom upp. Suarez var dæmdur í átta leikja bann fyrir að vera með kynþáttaníð í garð Patrice Evra. Suarez neitaði sök en Liverpool ákvað á endanum að áfrýja ekki úrskurðinum, þó svo að félagið hafi staðið þétt við bak síns manns. Alex Ferguson, stjóri United, hefur hvatt stuðningsmenn sína til stillingar og forráðamenn beggja liða vona að leikurinn geti farið fram undir eðlilegum kringumstæðum. Það er þó viðbúið að Evra fái heldur óblíðar viðtökur hjá heimamönnum. „Ég held að sá leikmaður sem spilar hvað mest eigi að vera með fyrirliðabandið og leiða sitt lið út á völlinn. Patrice hefur verið sá leikmaður," sagði Ferguson. „Hann er afar vinsæll og vel liðinn. Honum fer það vel að vera fyrirliði." „Rio [Ferdinand] hefði verið fyrirliði ef hann hefði átt í sínum meiðslavandræðum. Patrice býr yfir öðrum eiginleikum. Hann lætur ekki mikið í sér heyra inn á vellinum en hefur víða áhrif og spilar til að mynda mjög vel fyrir liðið allt."
Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira