City hafnaði boði Liverpool um skipti á Carroll og Tevez Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. janúar 2012 12:30 Carroll hefur átt erfitt uppdráttar á Anfield. nordic photos / getty images
Á vefsíðu Guardian er fullyrt að Liverpool hafi gert Manchester City tilboð um skipti á sóknarmönnunum Andy Carroll og Carlos Tevez. City hafi hins vegar hafnað tilboðinu. Fram kemur að Liverpool hafi sett sig í samband við City og spurst fyrir um þá upphæð sem félagið vildi fá fyrir Carlos Tevez. Í kjölfarið hafi forráðamenn Liverpool lagt til að félögin skiptu einfaldlega á leikmönnum. City hafi hins vegar hafnað tilboðinu um leið þrátt fyrir að Mancini hafi á sínum tíma lýst yfir aðdáun sinni á Carroll þegar hann var í herbúðum Newcastle. Þessar fréttir koma töluvert á óvart enda hafa forráðamenn Liverpool ítrekað lýst yfir trú sinni á enska sóknarmanninum. Þrátt fyrir það hefur Carroll ekki spilað fleiri en þrjá leiki í röð og aðeins skorað sex mörk í 35 leikjum. Carroll var keyptur til Liverpool í janúarglugganum á síðasta ári á 35 milljónir punda og er sem stendur áttundi dýrasti knattspyrnumaðurinn í sögu íþróttarinnar. Talið er að Liverpool hafi verið tilbúið að verðleggja Carroll á 25 milljón pund sem er talin vera sú upphæð sem City vill fá fyrir Tevez. Tevez hefur ekkert spilað í ellefu vikur með City eftir að hann neitaði að hita upp sem varamaður í leik í Meistaradeild Evrópu. Síðan þá hefur andað afar köldu milli hans og Roberto Mancini, knattspyrnustjóra félagsins, sem gaf Tevez þó tækifæri á að biðjast afsökunar sem Argentínumaðurinn tók ekki til greina. Samkvæmt Guardian er Tevez á leiðinni til Englands í næstu viku. Argentínumaðurinn hefur tvívegis verið sektaður af City fyrir framkomu sína og fjarveru. Hann hefur verið orðaður við Mílanó liðin AC og Inter auk PSG í París en ekkert komið út úr viðræðum félaganna.
Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira