Fyrsti bikarsigur QPR í 17 tilraunum - Bolton komst áfram Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. janúar 2012 19:29 Gabbidon skorar sigurmarkið og tryggir QPR sæti í 4. umferðinni. nordic photos / getty images
Heiðar Helguson kom inná sem varamaður í síðari hálfleik þegar QPR vann 1-0 sigur á MK Dons í 3. umferð enska bikarsins í kvöld. Grétar Rafn Steinsson var ekki í leikmannahópi Bolton sem vann 2-0 sigur á Macclesfield Town. QPR lenti í miklu basli með spræka liðsmenn MK Dons á Loftus Road í kvöld. Gestirnir voru síst lakari aðilinn í leiknum og virtist nýr knattspyrnustjóri QPR, Mark Hughes, nokkuð áhyggjufullur á hliðarlínunni. Á 72. mínútu skipti Hughes Heiðari Helgusyni inná og innan við hálfri mínútu síðar lá boltinn í netinu. Varnarmaðurinn Danny Gabbidon skallaði þá knöttinn í netið eftir hornspyrnu, hans fyrsta mark í sjö ár. Gestirnir voru aldrei líklegir til þess að jafna eftir þetta og QPR tryggði sér sæti í 4. umferð þar sem liðið tekur á móti Chelsea. Sigur QPR var líka athyglisverður fyrir þær sakir að liðið hafði ekki unnið sigur í FA-bikarnum í síðustu 16 leikjum sínum í keppninni.Sigur hjá Bolton - Beckford og Henderson með þrennur Á Reebok-vellinum í Bolton unnu heimamenn þægilegan sigur á Macclesfield Town. Kevin Davies kom heimamönnum yfir á fyrstu mínútu og Búlgarinn Martin Petrov bætti við öðru marki um miðjan fyrri hálfleikinn. Fleiri urðu mörkin ekki og Bolton tekur á móti Swansea í 4. umferðinni. Þá vann Leicester 4-0 stórsigur á Nottingham Forest í uppgjöri Championship-liðanna. Jermaine Beckford skoraði þrennu fyrir lærisveina Sven Göran Eriksson. Darius Henderson var einnig á skotskónum og skoraði þrennu í 4-0 sigri Millwall á D-deildarliði Dagenham & Redbridge. Leikir í 4. umferð bikarkeppninnar fara fram helgina 28. - 29. janúar. Fylgst var með öllum leikjunum hér á boltavakt Vísis eins og sjá má hér að neðan.
Mest lesið Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Körfubolti Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli Íslenski boltinn „Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Sport „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Sjá meira