Daily Mail: Ferguson setti Rooney í agabann Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. janúar 2012 11:30 Wayne Rooney í leik með Manchester United. Nordic Photos / Getty Images
Enska götublaðið Daily Mail heldur því fram í dag að Wayne Rooney hafi ekki spilað með Manchester United gegn Blackburn í gær þar sem að hann hafi verið í agabanni. Blaðið segir að Rooney og eiginkona hans, Coleen, hafi farið út að borða með þeim Darron Gibson og Jonny Evans og þeirra mökum að kvöldi annars dags jóla. United hafði unnið 5-0 sigur á Wigan fyrr um daginn. Þeir mættu svo allir á æfingu næsta dag og ræddu sín á milli um kvöldið. Alex Ferguson heyrði af þessu og boðaði Rooney á sinn fund. Ekki er greint frá því hvað þeir ræddu nákvæmlega um en samkvæmt blaðinu virðist Ferguson hafa talið að þremenningarnir hafi brotið agareglur með því að fara út á lífið. Ekki er fullyrt í greininni að þeir hafi neytt áfengis - heldur aðeins að þeir hafi farið á veitingastað til fá sér að borða. Ferguson sagði í viðtali fyrir leikinn gegn Blackburn í gær að Rooney hefði ekki getað æft nógu vel fyrir leikinn og því hafi verið ákveðið að hvíla hann. United tapaði leiknum, 3-2, og horfði Rooney á hann úr stúkunni. Evans er meiddur en Gibson spilaði ekki heldur í gær. Blaðið heldur því einnig fram að þeir hefðu þurft að æfa aukalega á miðvikudaginn en þá áttu þeir að vera í fríi. Rooney mun einnig hafa verið sektaður um háa upphæð. Talsmenn United vildu ekki tjá sig við blaðið þegar eftir því var leitað.
Mest lesið Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Handbolti KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Handbolti Fleiri fréttir Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Jafnt í ótrúlegum átta marka leik á Old Trafford Sjá meira