Eggert Gunnþór: Væri gaman að fá sénsinn gegn Chelsea í dag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. janúar 2012 10:00 Mynd/Heimasíða Wolves
Eggert Gunnþór Jónsson fær tækifæri í dag til að þreyta frumraun sína með Wolves í ensku úrvalsdeildinni en hann gekk formlega til liðs við félagið þegar opnað var fyrir félagaskipti nú um áramótin. Eggert kom frá skoska liðinu Hearts þar sem hann hefur verið frá sextán ára aldri. Eggert verður í leikmannahópi Wolves í dag en óvíst er hvort hann fer beint í byrjunarlið Úlfanna strax í fyrsta leik. „Það verður bara að koma í ljós, ég er allavega í hópnum og býst fastlega við að vera á skýrslu," sagði Eggert við Fréttablaðið í gær. „Ég byrjaði að æfa 27. desember og hef því ekki fengið margar æfingar með liðinu. Það er líka búið að vera mikið leikjaálag og því hafa æfingarnar verið nokkuð léttar," sagði Eggert. „En það væri auðvitað gaman að fá séns." Honum líkar vel við vistina enn sem komið er og hlakkar til að fá að spreyta sig í ensku úrvalsdeildinni. „Mér líst vel á þetta allt saman og spennandi tímar fram undan. Mér finnst ég vera tilbúinn fyrir þessa deild og það væri ekki ónýtt að fá að spila gegn liði eins og Chelsea strax í fyrsta leik. Ég geri mér samt grein fyrir því að tekur tíma til að venjast nýjum aðstæðum og nýju liði en vonandi tekst mér að festa mig í sessi hér." Greint var frá því um helgina að miðjumaðurinn Emmanuel Frimpong hjá Arsenal hafi verið lánaður til Wolves til loka tímabilsins. Eggert fagnar komu hans. „Það lá fyrir að það þyrfti að styrkja miðjuna hjá liðinu og því er þetta bara hið besta mál. Þetta er góður leikmaður og verður spennandi að fylgjast með honum." Wolves er sem stendur í sextánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sautján stig og hefur ekki unnið leik síðan liðið hafði betur gegn Sunderland, 2-1, í byrjun desember. Liðið hefur þó gert jafntefli í síðustu þremur leikjum sínum í deildinni. Leikur Wolves og Chelsea fer fram klukkan 15.00 í dag.
Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins Körfubolti Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti Fleiri fréttir Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Liverpool vann Athletic tvívegis á Anfield „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Sjá meira