Suarez: Nú skil ég það fyrir alvöru hvað "You'll Never Walk Alone" þýðir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2012 19:28 Luis Suarez og Patrice Evra. Mynd/Nordic Photos/Getty
Liverpool birti yfirlýsingu frá Luis Suarez á heimasíðu sinni í kvöld eftir að ljóst varð að átta leikja banni hans yrði ekki áfrýjað. Suarez byrjar á því að taka út bannið í kvöld en enska knattspyrnusambandið dæmdi Úrúgvæmanninn á dögunum fyrir kynþáttaníð gagnvart Patrice Evra hjá Manchester United. Suarez mun ekki spila með Liverpool fyrr en í febrúar.Hér fyrir neðan má sjá þýðingu á yfirlýsingu Suarez. Ég vil byrja á því að þakka öllum fyrir alla hjálpina og allan stuðninginn undanfarnar vikur. Ég vil þakka fjölskyldu minni, vinum mínum og öllum hjá Liverpool hvort sem það eru starfsmenn, stjórinn, þjálfarar, stjórnarmenn, liðsfélagarnir eða aðrir sem vinna fyrir félagið. Ég vil líka þakka stuðningsmönnunum sérstaklega fyrir það að sjá til þess að mér leið aldrei eins og ég stæði einn í þessu. Nú skil ég það fyrir alvöru hvað "You'll Never Walk Alone" þýðir Eins og mörg ykkar þá var ég fæddur inn í hógværa fjölskyldu í verkalýðsstétt í litlu landi. Ég var alinn þannig upp að ég vissi hvað virðing, mannasiðir og fórnir þýða. Ég get þakkað fjölskyldu minni fyrir það og fyrir það að ég varð að þeim manni sem ég er í dag. Ég hef aldrei og ég endurtek, aldrei, lent í vandamálum gagnvart liðsfélaga eða annarri manneskju sem var ekki af sama kynþætti eða af sama húðlit og ég. Aldrei nokkurn tímann. Ég er mjög ósáttur með allt sem hefur verið sagt um mig undanfarnar vikur enda er það allt langt frá því að vera satt. Ég er líka mjög ósáttur með að geta ekkert gert við því að vera ásakaður um eitthvað sem ég gerði ekki og mun aldrei gera. Í mínu heimalandi er orðið "negro" notað oft og það er ekki orð sem felur í sér einhverja lítilsvirðingu eða tengist einhverjum kynþáttafordómum. Allt sem hefur verið sagt hingað til er því algjörlega ósatt. Ég mun taka út þetta bann sem saklaus maður sem hefur ekkert gert af sér og er mjög sár yfir því sem hefur gerst. Ég finn til með stuðningsmönnunum og með liðsfélögum mínum af því að ég get ekkert hjálpað þeim næsta mánuðinn. Þetta verður mjög erfiður tími fyrir mig. Það eina sem ég óska er að fá tækifæri til að hlaupa út á Anfield á ný og fá að gera það sem ég elska mest sem er að spila fótbolta. Það er hægt að sjá yfirlýsinguna með því að smella hér.
Mest lesið Allt small og Rauðu djöflarnir sjá úrslitaleikinn í hillingum Fótbolti „Þetta var hið fullkomna kvöld“ Fótbolti „Annar fóturinn í úrslitaleikinn en ekkert er búið enn“ Fótbolti „Þetta er ekki búið“ Fótbolti Albert byrjaði í naumu tapi í Andalúsíu Fótbolti Gísli Þorgeir skaut Magdeburg áfram Handbolti Meistaradeildardraumur Forest að breytast í martröð Enski boltinn „Erum komnar til þess að fara alla leið“ Sport Mark undir lok leiks gefur Norðmönnum von Fótbolti Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 86-79 | Haukar taka forystu í úrslitaeinvíginu Körfubolti Fleiri fréttir Meistaradeildardraumur Forest að breytast í martröð Trans konum bannað að spila í kvennaflokki á Bretlandi Með Man. Utd til Spánar en mega samt ekki spila Chelsea meistari sjötta árið í röð Rodri aftur til æfinga en sagður bíða eftir HM Sádar eltast við þrjá framherja Liverpool ITV styður Ian Wright og gæti losað sig við Eni Aluko Leeds sló eigið stigamet Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Willum skoraði og lagði upp í stórsigri Birmingham City City í úrslit þriðja árið í röð Englandsmeistaratitillinn tryggður með stæl Höjlund bjargaði United i blálokin á móti tíu mönnum Bournemouth Fjögur lið gætu staðið heiðursvörð fyrir Liverpool Tímabilið gæti verið búið hjá Marcus Rashford Jón Daði skoraði og Victor vann Íslendingaslaginn Newcastle felldi Ipswich og komst upp í þriðja sætið Chelsea upp í fjórða sætið Evra vill berjast við Suárez í búrinu: Hann má meira að segja bíta mig „Vilja allir spila fyrir Man United“ Kidd kominn í eigendahóp Everton Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Sjá meira