Manchester United sló granna sína í City út úr enska bikarnum Stefán Árni Pálsson skrifar 8. janúar 2012 00:01 Rooney fagnar í dag.
Manchester-liðin mættust í 3. umferð enska bikarsins á City of Manchester vellinum í dag. Þeir rauðklæddu náðu að innbyrða góðan sigur, 3-2, í hreint mögnuðum leik en Manchester United var 3-0 yfir í hálfleik en heimamenn gáfust aldrei upp. City kom til baka í þeim síðari og skoruðu tvö mörk en það dugði ekki til og því féllu bikarmeistararnir úr leik. Það bárust svakaleg tíðindi í herbúðum Manchester United rétt fyrir leik þegar í ljós kom að Paul Scholes hefði tekið þá ákvörðun að taka fram skóna á ný. Scholes byrjaði leikinn á varamannabekknum en átti eftir að koma við sögu. Gestirnir komust yfir eftir tíu mínútna leik þegar Wayne Rooney skallaði boltann í netið alveg óverjandi fyrir Costel Pantilimon í marki City. Útlitið var enn dekkra fyrir Manchester City tveim mínútum síðar þegar Vincent Kompany fékk beint rautt spjald fyrir tveggja fóta tæklingu á Nani. Heldur strangur dómur en Kompany kom aldrei við Nani. Danny Welbeck skoraði annað mark Manchester United eftir hálftímaleik en markið var stórglæsilegt. Welbeck var aftur á ferðinni tíu mínútum síðar þegar hann fiskaði vítaspyrnu. Rooney fór á punktinn en Pantilimon varði spyrnuna, Rooney náði aftur á móti frákastinu og skallaði boltann í netið. Staðan var því 3-0 fyrir gestina í hálfleik og útlitið virkilega svart fyrir heimamenn. Síðari hálfleikurinn hófst með miklum látum og það tók heimamenn aðeins þrjá mínútur að minnka muninn. Aleksandar Kolarov skoraði fínt mark og opnaði leikinn á ný. Sergio Agüero skoraði síðan annað mark City á 64. mínútu og allt í einu var komin gríðarlega spenna í Manchester. Lengra komst Manchester City ekki og United því komið áfram í enska bikarnum. Bikarmeistararnir í Manchester City hafa lokið keppni í ár.
Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Íslenski boltinn Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira