Verður stríð eða friður? Henry Birgir Gunnarsson skrifar 22. september 2012 08:00 munu þeir haga sér vel? Augu margra verða á Evra og Suarez í leiknum á morgun.nordicphotos/getty
Loftið verður örugglega lævi blandið á Anfield á morgun er Liverpool tekur á móti Man. Utd. Þetta er fyrsti heimaleikur Liverpool síðan skýrslan um Hillsborough kom út og einnig í fyrsta skipti sem Patrice Evra snýr aftur á Anfield eftir uppákomuna með Luis Suarez í fyrra. Evra sakaði þá Suarez um kynþáttaníð í sinn garð og fékk Suarez átta leikja bann í kjölfarið. Það var Suarez ekki sáttur við, ásamt fleirum. Bæði félög leggja mikið upp úr því að bæði leikmenn og stuðningsmenn verði til friðs af virðingu við hina 96 sem féllu á Hillsborough á sínum tíma. Það verður þó örugglega undiralda vegna Evra og Suarez, bæði innan og utan vallar. „Við höfum gert okkar til þess að allt fari vel fram og Liverpool hefur gert það sama. Skilaboðunum hefur verið komið á framfæri," sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd. Ferguson hefur staðfest að Wayne Rooney muni ekki verða klár í slaginn, ekki frekar en Ashley Young. Nemanja Vidic, fyrirliði Man. Utd, hefur einnig stigið fram fyrir skjöldu og biðlað til stuðningsmanna síns liðs að haga sér vel á þessum sérstaka leik. „Fótbolti er mikilvægur en aldrei eins mikilvægur og lífið sjálft. Það er mikil saga á milli félaganna og mikilvægt að allir sýni hver öðrum virðingu. Við verðum öll að setja gott fordæmi fyrir aðra á þessum degi," sagði Vidic. Liverpool-goðsögnin Robbie Fowler kom síðan með þá fínu hugmynd að þeir Suarez og Evra myndu leggja saman blóm á völlinn fyrir leikinn. Liverpool er ekki enn búið að vinna leik í vetur en mætir til leiks með sitt sterkasta lið enda fengu ungu strákarnir að spila gegn Young Boys í Evrópudeildinni. Þetta verður 186. leikur liðanna en United hefur unnið 72, Liverpool 62 og í 51 skipti hefur leik liðanna lyktað með jafntefli. Liverpool hefur aftur á móti ekki tapað í síðustu fimm leikjum gegn Man. Utd á Anfield.
Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára strákur drukknaði Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum Enski boltinn Fleiri fréttir Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Sjá meira