Sir Alex Ferguson gerir lítið úr Newcastle Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. desember 2012 16:30 Sir Alex Ferguson og Alan Pardew. Nordicphotos/Getty
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, brást illa við gagnrýni Alan Pardew, knattspyrnustjóra Newcastle, á blaðamannafundi í dag. Enska knattspyrnusambandið tilkynnti í gær að Ferguson fengi enga refsingu fyrir hávær mótmæli sín við Mike Dean dómara í viðureign United gegn Newcastle á annan dag jóla. Ástæðan var sú að Dean minntist ekki á atvikið í skýrslu sinni. Pardew sagði að hegðun Ferguson hefði verðskuldað refsingu og taldi að Dean dómari væri líkast til svekktur að hafa ekki sent Ferguson upp í stúku. „Alan Pardew hefur gagnrýnt mig opinberlega. Hann er manna verstur þegar kemur að því að tuða í dómurunum. Hann ýtir þeim og slær því upp í grín," sagði Ferguson og hélt áfram. „Að hann vogi sér að gagnrýna mig er ótrúlegt. Hann gleymir því líka hvernig ég aðstoðaði hann á sínum tíma," sagði Ferguson. Pardew fékk tveggja leikja bann og var sektaður um fjórar milljónir króna fyrir að ýta við aðstoðardómara fyrr á leiktíðinni. Atvikið átti sér stað í 2-1 sigri Newcastle á Tottenham í ágúst þegar Pardew taldi boltann hafa farið út fyrir hliðarlínuna öfugt við skoðun aðstoðardómarans. „Ég var ákveðinn en fór ekki yfir strikið. Fjölmiðlar hafa farið á flug. Eina manneskjan sem ekki hefur rætt við er Barack Obama af því hann er upptekinn," sagði Ferguson og skaut föstum skotum að Alan Pardew og Newcastle. „Því miður er ég stjóri frægasta félag í heiminum en ekki Newcastle, smáliðs í norðaustur Englandi," sagði Ferguson.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Íslenski boltinn Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tottenham - Aston Villa | Komast heimamenn á blað? Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Sjá meira