Arsenal missti niður tveggja marka forskot Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. júlí 2011 21:38 Riquelme lagði upp bæði mörk Boca Juniors á Emirates í dag. Nordic Photos/AFP
Arsenal og Boca Juniors gerðu 2-2 jafntefli í Emirates-bikarnum í knattspyrnu í Lundúnum síðdegis í dag. Arsenal komst í 2-0 en argentínska liðið jafnaði leikinn. Í fyrri leik dagsins vann New York Red Bulls óvæntan 1-0 sigur á Paris Saint Germain. Arsene Wenger stillti upp nokkuð sterku liði gegn Boca Juniors á Emirates í dag. Fyrirliðinn Robin Van Persie kom Arsenal yfir í fyrri hálfleik eftir góðan undirbúning Gervinho og Jack Wilshere. Staðan í hálfleik 1-0. Aaron Ramsey kom inn á í lið Arsenal í hálfleik og kom liðinu í 2-0 eftir 43 sekúndur í hálfleiknum. Boca neituðu að gefast upp og skoruðu tvö mörk með stuttu millibili í síðari hálfleik. Fyrst sendi Riquelme boltann á Viatri sem kláraði færið upp í nær hornið. Skömmu síðar var Riquelme aftur á ferðinni. Sendi knöttinn inn fyrir vörnina á varamanninn Mouche sem jafnaði metin. Lokatölurnar 2-2 sem þýðir að bæði lið fá þrjú stig úr leiknum. Eitt fyrir jafntefli og tvö stig fyrir að skora tvö mörk. Í hinni viðureign dagsins mætti New York Red Bulls liði Paris Saint Germain. Bandaríska liðið vann óvæntan 1-0 sigur með marki Eistans Joel Lindpere í fyrri hálfleik. Franska liðið olli vonbrigðum en félagið hefur farið mikinn á leikmannamarkaðinu undanfarnar vikur. Red Bulls eru efstir í riðlinum með fjögur stig. Þrjú fyrir sigur og eitt fyrir markið sitt. Á morgun fara seinni leikir keppninnar fram. Boca Juniors mætir Paris Saint Germain og Arsenal mætir New York Red Bulls. Reiknað er með því að Thierry Henry byrji leikinn með Red Bulls en markahæsti leikmaður MLS-deildarinnar kom ekkert við sögu í leiknum í dag.
Enski boltinn Mest lesið Valur - Keflavík 79-78 | Sturluð sigurkarfa Kára Körfubolti Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Körfubolti Bein útsending: Öllu tjaldað til á Sjally Pally Sport Tindastóll - ÍR 125-87 | Fyrstir inn í undanúrslit Körfubolti Skutlað í skólann og svo einkaþota á Augusta Golf Skjálfti í Skyttunum Enski boltinn Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Íslenski boltinn „Þetta er högg í andlitið“ Enski boltinn Segir að Ekroth verði að gera betur Íslenski boltinn Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Sjá meira