Enski boltinn

Liverpool að reyna að fá Downing frá Aston Villa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stewart Downing fagnar hér einu marka sinna í vetur.
Stewart Downing fagnar hér einu marka sinna í vetur. Mynd/Nordic Photos/Getty
Liverpool er að reyna að kaupa enska landsliðsvængmanninn Stewart Downing frá Aston Villa samkvæmt heimildum Skysports. Downing er markahæsti leikmaður Aston Villa á tímabilinu með fimm mörk og hefur verið með í öllum leikjum liðsins á leiktíðinni.

Downing er 26 ára gamall og kom til Aston Villa frá Middlesbrough fyrir aðeins átján mánuðum. Downing kostaði Aston Villa tólf milljónir punda á sínum tíma. Gerard Houllier, stjóri Aston Villa, vonaðist eftir því á dögunum að honum tækist að halda Downing á Villa Park.

Enskir miðlar skrifa um það að Aston Villa vanti nú pening til að fjármagna kaup sín á Darren Bent frá Sunderland. Það eru því meiri líkur á því að félagið sé tilbúið að selja Downing.

Downing er búinn að skora fimm mörk og gefa þrjár stoðsendingar í 21 leiki í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Það er mun betra hjá honum en í fyrra þegar hann var með tvö mörk og eina stosðendingu í 25 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×