Wenger staðfestir að Henry komi aftur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. desember 2011 11:30 Thierry Henry og Arsene Wenger. Nordic Photos / Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, staðfesti á blaðamannafundi í morgun að Thierry Henry muni ganga aftur til liðs við félagið sem lánsmaður frá New York Red Bulls í tvo mánuði. „Hann er kominn til að hjálpa félaginu sem hann elskar," sagði Wenger en Henry fór frá Arsenal árið 2007 eftir átta ára dvöl. Hann er markahæsti leikmaður liðsins frá upphafi og var stytta reist af honum fyrir utan heimavöll félagsins nú fyrir skömmu. MLS-deildin bandaríska er nú í fríi og því hefur Henry verið að æfa með Lundúnarliðinu síðustu vikurnar. Hann hefur þótt standa sig vel á þeim og þykir góður kostur fyrir liðið á meðan sóknarmennirnir Marouane Chamakh og Gervinho eru fjarverandi með landsliðum sínum í Afríkukeppninni í næsta mánuði. Arsenal mætir QPR í ensku úrvalsdeildinni á morgun og sagði Wenger að ekki væri búið að ganga frá allri pappírsvinnu en að Henry myndi koma ef Arsenal kemst að samkomi við New York Red Bull um greiðslu trygginga. „Þetta er bara jákvætt," sagði Wenger. „Hann býr yfir óviðjafnanlegum hæfileikum. Hann er afar reyndur og getur hjálpað öðrum, bæði innan vallar sem utan. En við verðum að passa okkur á því að setja ekki of mikla pressu á hann. Hann er 34 ára gamall og er hér til að hjálpa - ekki vera aðalmaðurinn í liðinu." „Það verður gott fyrir okkur að fá þá Thierry og Robin van Persie til að spila saman."
Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira