Van der Vaart enn á ný tognaður aftan í læri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. desember 2011 10:15 Rafael van der Vaart. Mynd/Nordic Photos/Getty
Hollendingurinn Rafael van der Vaart getur ekki spilað með Tottenham í jólatörninni í ensku úrvalsdeildinni eftir að hann tognaði aftan í læri í jafnteflinu á móti Chelsea í gær. Van der Vaart var tekinn útaf í hálfleik og Harry Redknapp óttast það að leikmaðurinn spili ekkert fyrr en á nýja árinu. „Já. það lítur út fyrir það," sagði Harry Redknapp eftir leikinn. Rafael van der Vaart er 28 ára gamall og hefur verið að glíma við tognanir aftan í læri allt þetta ár. „Hann virðist sífellt vera í vandræðum með tognanir aftan í læri. Hann er frábær leikmaður en við þurfum að halda honum heilum," sagði Redknapp. Það eru fleiri Tottenham-menn að glíma við meiðsli. Jermain Defoe og Younes Kaboul eru líka tognaðir aftan í læri og það er ólíklegt að Ledley King verði með í næsta leik. Aaron Lennon, Michael Dawson og Tom Huddlestone eru líka allir meiddir. Tottenham á eftir að spila við Norwich og Swansea á þessu ári og fara leikirnir fram 27. og 31. desember. Fyrsti leikur nýja ársins er síðan á móti West Brom á heimavelli 3. janúar.
Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Fleiri fréttir Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Sjá meira