Stórbrotið sigurmark hjá Rooney í Manchester-slagnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2011 14:42 Wayne Rooney fagnar sigurmarki sínu með Nani. Mynd/Nordic Photos/Getty
Wayne Rooney tryggði Manchester United 2-1 sigur á nágrönnunum í Manchester City með stórbrotnu marki í leik liðanna á Old Trafford í dag. Nani skoraði fyrra markið og lagði upp það síðara en United náði með þessum sigri sjö stiga forskoti á Arsenal sem mætir Wolves seinna í dag. Wayne Rooney skoraði aðeins tvö mörk í fyrstu fjórtán deildarleikjum tímabilsins en hefur nú skorað þrjú mörk í síðustu þremur leikjum sínum með United. Manchester City byrjaði vel og David Silva fékk dauðafæri strax á 4. mínútu eftir undirbúing Carlos Tevez en skaut framhjá markinu. Manchester City liðið spilaði fyrri hálfleikinn lengstum vel en það var hinsvegar United sem skoraði eina mark hálfleiksins á 41. mínútu. Edwin van der Sar átti þá langt útspark sem Wayne Rooney skallaði fyrir fætur Ryan Giggs. Giggs las leikinn vel og átti flotta sendingu inn hlaup hjá Nani sem lagði boltann fyrir sig og skoraði laglega.Edin Dzeko er hér búinn að skjóta í bakið á David Silva og boltinn er á leiðinni í mark United.Mynd/Nordic Photos/GettyRoberto Mancini setti Edin Dzeko inn á fyrir James Milner á 60. mínútu og aðeins fimm mínútum seinna var City búið að jafna. City-menn höfðu reyndar heppnina með sér í markinu. Shaun Wright-Phillips sendi þá fyrir markið og Dzeko skaut í bakið á David Silva og í markið. Silva fær markið skráð á sig þrátt fyrir að vissi lítið hvað væri í gangi. Wayne Rooney kom hinsvegar Manchester United aftur yfir á 78. mínútu með stórkostlegu marki. Nani sendi boltann fyrir og Rooney skoraði með frábærri hjólhestaspyrnu upp í bláhornið, óverjandi fyrir Joe Hart í markinu.Meistaravonir Manchester City dóu væntanlega með þessu tapi en liðið er nú átta stigum á eftir United-liðinu og hefur auk þess leikið einum leik meira.
Mest lesið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Sport „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ Enski boltinn ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Fótbolti Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Íslenski boltinn Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds Enski boltinn „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Körfubolti Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ Fótbolti „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Enski boltinn KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Körfubolti Fleiri fréttir Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Sjá meira