Redknapp: Beckham vill koma til Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2011 22:00 Harry Redknapp, stjóri Tottenham. Mynd/Nordic Photos/Getty
Harry Redknapp, stjóri Tottenham, segir að David Beckham vilji koma til Tottenham á láni og spila næstu næstu mánuðina á White Hart Lane. Redknapp segir líka að það sé mikil þörf á leikmanni í hans stöðu í sínu liði. Beckham ákvað það víst yfir jólin að hann vildi koma aftur til Evrópu og þá helst spila í ensku úrvalsdeildinni. Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, vildi ekki fá hann til United en Redknapp tekur honum fagnandi. „Hann sagði mér að hann vilji koma og spila með Tottenham. Við verðum samt að vera fljótir að klára þetta mál," sagði Harry Redknapp en Darren Eales, yfirmaður knattspyrnumála hjá Tottenham mun fara til Los Angeles og reyna að semja við Galaxy -liðið. „Ég er búinn að láta þetta í hendurnar á starfsmönnum félagsins. Þeir eru að tala við þá sem ráða þessu hjá Galaxy," sagði Redknapp og hann segir pláss fyrir Beckham í Spurs-liðinu. „Aaron Lennon er eini hægri vængmaðurinn okkar. David Bentley er alltaf að meiðast og nú síðast á föstudaginn. Þetta er borðleggjandi," sagði Redknapp. „Þegar ég fékk Teddy Sheringham til Portsmouth þá sagði ég við strákana. Horfið á hann, hann gerir allt hundrað prósent rétt. Ég held að Beckham verði eins. Hann er oft klukkutíma lengur eftir æfingar og fyrir unga leikmenn að sjá slíkt er betra en allir þjálfarar í heimi," sagði Redknapp.
Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira