Móðgun við ræsisrottur að kalla Diouf ræsisrottu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. janúar 2011 11:00 Hér er verið að bera Mackie af velli. Nordic Photos / Getty Images
Neil Warnock, stjóri QPR, hefur greinilega ekki mikið álit á El-Hadji Diouf, leikmanni Blackburn, en þessi lið mættust í ensku bikarkeppninni í dag. Jamie Mackie, leikmaður QPR, fótbrotnaði í leiknum eftir tæklingu Gael Givet. Á meðan verið var að gera að sárum Mackie inn á vellinum jós Diouf fúkyrðum yfir hann. „Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með El-Hadji Diouf," sagði Warnock eftir leikinn sem Blackburn vann, 1-0. „Strákarnir voru brjálaðir. Hann [Mackie] var fótbrotinn og hann [Diouf] kallaði hann öllum illum nöfnum." „Þetta var algerlega tilgangslaust. Meira að segja blöskraði fólkinu frá Blackburn. Svona fólk umber ég ekki. Ég skil ekki af hverju hann ætlar sér að rífast við allan heiminn í hverri einustu viku." „Mér hefur í mörg ár fundist hann vera strákur á ekkert betra skilið en að vera í ræsinu. Ég ætlaði að kalla hann ræsisrottu en ég gerði mér þá grein fyrir því að það væri líklega móðgandi í garð ræsisrotta." „Ég á ekki von á því að hann verði lengi hjá Blackburn þar sem ég tel það ólíklegt að maður eins og Steve Kean [stjóri Blackburn] líði það að hafa svona mann í búningsklefanum þegar hann er að reyna að byggja upp nýja ímynd á félaginu."
Enski boltinn Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira