Huddersfield hefur spilað 42 leiki í röð án þess að tapa Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. nóvember 2011 07:30 Lee Clark. Þessi fyrrverandi leikmaður Newcastle er einn efnilegasti knattspyrnustjóri Englands í dag.nordicphotos/getty
Harðjaxlinn Lee Clark hefur náð frábærum árangri með Huddersfield, en liðið hefur undir stjórn hans ekki enn tapað deildarleik á árinu 2011. Ef liðið tapar ekki fyrir Notts County í ensku C-deildinni um helgina slær það 33 ára gamalt met Nottingham Forest, sem lék 42 leiki í röð án taps undir stjórn hins goðsagnakennda Brians Clough. Metið stendur í ensku deildakeppninni, The Football League, og á því ekki við ensku úrvalsdeildina sem var stofnuð árið 1992. Þar á Arsenal metið, en liðið lék 49 leiki í röð án taps frá 2003 til 2004. Huddersfield jafnaði met Nottingham Forest í síðustu umferð, en þá gerði liðið 1-1 jafntefli við Walsall á heimavelli. Það hefur þó verið helsta vandamál Hudderfield að af þessum 42 taplausu leikjum eru átján jafntefli. Liðið er ekki á toppi C-deildarinnar í Englandi, heldur í öðru sæti og fimm stigum á eftir toppliði Charlton. Huddersfield tapaði síðast fyrir Southampton, 4-1, hinn 28. desember í fyrra en síðarnefnda liðið komst upp í B-deildina og trónir nú á toppi hennar. Clark hefur vakið athygli stærri liða vegna þessa góða gengis og var síðast sterklega orðaður við B-deildarlið Leicester sem rak Sven-Göran Eriksson á dögunum. Clark steig fram á sjónarsviðið og sagðist ekki hafa í hyggju að fara frá Huddersfield. „Það eina sem ég hef áhuga á er að halda áfram að sinna því verkefni sem hafið er hjá Huddersfield,“ sagði Clark. „Ég tek því sem hrósi ef önnur félög hafa áhuga á mér en ekkert meira en það.“ Clark lék sem atvinnumaður í sextán ár í Englandi, með Newcastle, Sunderland og Fulham. Hann hefur starfað sem þjálfari frá 2006 en tók við Huddersfield í desember 2008. Hann fékk Jóhannes Karl Guðjónsson til félagsins sumarið 2010 en gaf það út fyrir tímabilið í ár að Jóhannes væri ekki lengur í hans plönum. Jóhannes Karl er enn samningsbundinn Huddersfield en ætlar að spila með ÍA næsta sumar.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira