Erlent

Hollande sigraði í forvalinu

Francois Hollande
Francois Hollande
Francois Hollande sigraði í gær í forkosningum Sósíalistaflokksins í Frakklandi. Hann verður því frambjóðandi flokksins til forseta landsins á næsta ári.

Hollande atti kappi við Martine Aubry í kosningunum. Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hafði verið talinn líklegastur til að hreppa útnefninguna áður en hann var sakaður um nauðgun og nauðgunartilraun fyrr á árinu.

Hollande er talinn verða helsti keppinautur Nicolas Sarkozy, núverandi forseta Frakklands, sem talið er víst að bjóði sig fram á ný. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×