Poyet: Enska deildin búin að vera slök á þessu tímabili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2011 18:42 Gus Poyet. Mynd/Nordic Photos/Getty
Úrúgvæmaðurinn Gus Poyet, fyrrum miðjumaður Chelsea og Tottenham, er ekki hrifinn af fótboltanum sem bestu liðin í ensku úrvalsdeildinni hafa boðið upp á þessu tímabili. Það að United sé enn taplaust er því bara að hans mati dæmi um slaka frammistöðu mótherja þeirra í deildinni. „Ég get auðveldlega gagnrýnt spilamennskuna í ensku úrvalsdeildini á þessu tímabili," sagði Gus Poyet í viðtali við Reuters í dag. Hann er nú stjóri hjá enska C-deildarliðinu Brighton and Hove Albion. „Ég veit það vel að sumir eru ekki sammála mér en ég tel að þetta sé eitt versta tímabilið í ensku úrvalsdeildinni á síðustu árum. Deildin er kannski jafnari og meira spennandi en um leið er ekkert lið að skara sérstaklega fram úr,"sagði Poyet. „Bestu rökin fyrir þessu eru að skoða lið United. Liðið er langt frá sínu besta en er samt í efsta sætinu. Þeir eiga skilið að vera á toppnum en ef þeir geta verið í forustu án þess að spila sinn besta leik hvað segir það þá um restina af deildinni," sagði Poyet. „Það er líka hægt að benda á aðrar deildir. Barcelona er á toppnum á Spáni af því að þeir eru búnir að vera frábærir. Ef við förum til annarra landa eins og Ítalíu þá er saman sagan. Liðin sem eru á toppnum eru þar af því að þau eru að spila góðan fótbolta," sagði Poyet og hann hefur ekki verið hrifinn af toppleikjum tímabilsins. „Að leik Arsenal og Chelsea undanskildum þá voru toppleikirnir, eins og leikurinn á milli Manchester-liðanna og leikurinn á milli Arsenal og Manchester City, allir skelfilegir. Maður býst við meira af enska boltanum og enska úrvalsdeildin þarf að fara að passa sig," sagði Poyet.
Mest lesið Ísland - Slóvenía 39-31 | Strákarnir okkar eru á leið í undanúrslit Handbolti Danir verða mótherjar Íslands í undanúrslitunum Handbolti Áfall fyrir Króata Dags skömmu fyrir úrslitastundu Handbolti Sauð á Degi sem lét þá sem ráða heyra það Handbolti Dagur og lærisveinar í undanúrslit og sendu Ísland niður í annað sætið Handbolti „Hún er í afneitun“ Sport Daninn leggur orð í belg eftir gagnrýni Dags og Gísla Þorgeirs Handbolti Haukur í hópnum gegn Slóvenum Handbolti Búnir að tímasetja leik Íslands og Danmerkur Handbolti Alfreð stýrði Þjóðverjum inn í undanúrslitin á EM Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Sjá meira