United vann nauman sigur á Swansea Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. nóvember 2011 00:01 Chicharito fagnar marki sínu í dag. Nordic Photos / Getty Images
Manchester United náði að halda í við Manchester City í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar með naumum 1-0 útisigri á Swansea í lokaleik dagsins í enska boltanum. Javier Hernandez skoraði eina mark leiksins strax í upphafi en heimamenn voru þó síst lakari aðilinn í leiknum. United komst svo nálægt því að bæta við undir lok leiksins en allt kom fyrir ekki. United er því með 29 stig í öðru sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Manchester City sem vann 3-1 sigur á Newcastle fyrr í dag. City er níu stigum á undan Newcastle og tólf á undan Chelsea, Tottenham og Arsenal. Heimamenn byrjuðu ágætlega í leiknum og ætluðu greinilega að selja sig dýrt. Swansea hafði fyrir leikinn staðið sig frábærlega á heimavelli en nýliðarnir hafa komið skemmtilega á óvart á tímabilinu. En United sýndi fljótt mátt sinn og komst yfir með marki Javier Hernandez eftir rúmlega tíu mínútna leik. Ryan Giggs, sem var að spila í sínu heimalandi, vann boltann af Angel Rangel og gaf hann boltann inn á teig þar sem að Hernandez var mættur og skoraði af stuttu færi. Swansea lét þó ekki segjast og fékk ágæt færi til að jafna leikinn. Annars var leikurinn þó nokkuð rólegur en undir lok fyrri hálfleiksins komst United nálægt því að skora aftur er Hernandez komst einn inn fyrir vörn heimamanna. Hann ákvað þó að reyna að gefa á Wayne Rooney í stað þess að skjóta sjálfur en sendingin hans var slök og sóknin fjaraði út. Hernandez kom svo boltanum í netið í upphafi seinni hálfleiksins en hann var dæmdur rangstæður, réttilega. Heimamenn voru áfram nokkuð sprækir en án þess þó að skapa sér mörg hættuleg færi. Phil Jones komst svo nálægt því að skora sitt fyrsta mark á ferlinum en skot hans hafnaði í stönginni seint í leiknum. United sótti svo stíft í uppbótartímanum en niðurstaðan varð 1-0 sigur þeirra rauðklæddu. Þar með minnkaði United forystu City á toppnum aftur í fimm stig. Þessi tvö lið virðast í nokkrum sérflokki eins og toppbaráttan lítur út í dag.Staðan í ensku úrvalsdeildinni
Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Keflavík - Valur | Klára Valsmenn einvígið í kvöld? Körfubolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn Leik lokið: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Handbolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf Fleiri fréttir Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Sjá meira