Stoke skammað út af handklæðunum 14. desember 2011 15:00 Delap er hér að þurrka boltann með handklæðinu góða.
Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar ætla loksins að taka í taumana vegna hegðunar Stoke City á heimavelli sínum sem þykir ekki alltaf vera sanngjörn í garð andstæðinga sinna. Stoke leggur mikið upp úr löngum innköstum og boltastrákarnir eru alltaf klárir með handklæði fyrir Rory Delap svo hann geti þurrkað boltann áður en hann kastar inn í teig. Eitt innkast getur því tekið allt af 40 sekúndur. Enska úrvalsdeildin mun fara fram á að ef Stoke ætli að halda þessu áfram verði útiliði einnig að fá að þurrka boltann ef það óskar þess. Ef ekki verður félaginu líklega refsað. Stoke beitir öllum brögðum til þess að ná árangri á heimavelli og þegar bestu liðin koma minnkar liðið til að mynda völlinn eins mikið og það getur. "Það vill enginn koma til Stoke. Dómaranum finnst það leiðinlegt sem og blaðamönnum, leikmönnum og lögreglu. Við reynum að gera fólki erfitt fyrir," sagði Jonathan Woodgate, varnarmaður Stoke. Þessi skítabrögð, ef svo má kalla, hafa verið að skila Stoke stigum og einnig því að allir eru gríðarlega pirraðir út í þá. Þannig vill Stoke reyndar hafa það og nú er spurning hvað enska knattspyrnusambandið gengur langt gagnvart félaginu sem allir væla út af.
Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira