Redknapp ætlar ekki að selja Pavlyuchenko Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. desember 2011 13:00
Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur látið Rússann Roman Pavlyuchenko vita af því að hann fá ekki að fara frá félaginu í janúar. Pavlyuchenko kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmark Tottenham á móti Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í gær. Pavlyuchenko ætlar sér að komast í EM-hóp Rússa næsta sumar og til þess þarf hann að spila meira. Pavlyuchenko hefur aldrei verið í byrjunarliði Tottenham í deildinni á þessu tímabili og var þarna aðeins að koma inn í þriðja sinn sem varamaður. „Einhverjir eru alltaf óánægðir. Þeir sem þú velur í liðið elska þig en þeir sem þú velur ekki þola þig ekki," sagði Harry Redknapp. „Pav er frábær leikmaður, hefur mikla hæfileika og getur klárað vel. Hann hefur bara verið óheppinn," sagði Redknapp og bætti við: „Rafael van der Vaart, Adebayor og Jermain Defoe hafa allir verið í frábæru formi, hann byrjaði tímabilið ekki vel og datt því neðar í goggunarröðinni," sagði Redknapp. „Þetta er erfitt fyrir hann því hann er landsliðsmaður sem vill komast á Evrópumótið. Ég ætla samt að halda öllum fjórum því við þurfum svona marga framherja," sagði Redknapp. Það er hægt að sjá sigurmarkið hans Roman Pavlyuchenko með því að smella á svipmyndir úr leiknum hér fyrir ofan.
Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira