Sturridge: Það væri heimska að afskrifa Chelsea í titilbaráttunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. desember 2011 13:30
Daniel Sturridge skoraði fyrir Chelsea á laugardaginn en það dugði ekki til því liðið gerði 1-1 jafntefli á móti botnliði Wigan. Sturridge tjáði sig um leikinn og möguleika Chelsea-liðsins á heimasíðu Chelsea. Chelsea er níu stigum á eftir toppliði Manchester City eftir úrslit helgarinnar, missti Tottenham upp fyrir sig og er því aftur komið niður í fjórða sætið. „Svona jafntefli eru svekkjandi því við lögðum svo mikið á okkur allan leikinn og fengum síðan á okkur þetta jöfnunarmark í lokin. Við munum samt rífa okkur strax upp og leggjum bara meira á okkur á æfingum fyrir næsta leik," sagði Daniel Sturridge. „Þetta er pirrandi fyrir alla en það er mikilvægt að við komum strax sterkir til baka sem ég veit að við gerum. Við höfðum gert það síðustu vikur þegar við fórum í gegnum erfitt leikjaprógram með glæsibrag," sagði hinn 22 ára gamli Sturridge. „Þetta er besta deildin í heimi og sex efstu liðin geta öll orðið meistarar. Við erum í þeim hópi og ég hef fulla trú á því að við getum tekið titilinn. Það eru ennþá fimm mánuðir eftir af mótinu og það væri heimska að afskrifa Chelsea í titilbaráttunni. Við munum berjast til síðasta leiks," sagði Sturridge en hann hefur leikið vel í vetur og er með 8 mörk í 12 leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Það má sjá mörkin í leiknum með því að smella hér fyrir ofan.
Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira