Nær André Villas-Boas desember-prófunum? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. nóvember 2011 13:30 Leikmenn Chelsea. Mynd/Nordic Photos/Getty
André Villas-Boas, stjóri Chelsea, á afar erfitt uppdráttar þessa dagana og enskir fjölmiðlar nefna hugsanlega brottrekstur í annarri hverri málsgrein enda hefur liðið nú tapað fimm af síðustu níu leikjum sínum. Chelsea-liðið átti slakan dag í gærkvöldi þegar liðið tapaði fyrir Liverpool í átta liða úrslitum enska deildarbikarsins en þetta var þriðja tap Chelsea-liðsins í síðustu fjórum heimaleikjum. Framundan eru þrjú stór próf og það má telja það öruggt að Villas-Boas þarf helst að ná þeim öllum til að halda starfi sínu. „Við verðum að ná sem mestu út úr desember-leikjunum okkar til þess að halda okkur inn í titilbaráttunni. Við erum að fara að mæta Newcastle, Manchester City og Tottenham í þessum mánuði og ef við klárum þá þá verðum við aftur komnir á fullu inn í baráttuna," sagði André Villas-Boas. „Við unnum upp tvö stig á toppliðin um síðustu helgi og nú er það okkar áskorun að gera enn betur í desember. Við erum tíu stigum á eftir en það getur margt gerst á fjórum mánuðum, sagði Villas-Boas.Desember-prófin hjá Chelsea-liðinu:Newcastle Utd - Chelsea á laugardaginn Erfiður leikur á St. James Park á móti spútnikliði deildarinnar. Newcastle situr eins og er í fjórða sætinu einu stigi á undan Cheslea og Newcastle-menn hafa ekki tapað á heimavelli sínum í vetur.Chelsea - Valencia 6. desember Chelsea verður að vinna leikinn til þess að komast áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar en markalaust jafntefli gæti líka dugað þeim tapi Bayern Leverkusen ekki sínum leik. Valencia skoraði sjö mörk í síðasta Meistaradeildarleiknum sínum sem var á móti Genk.Chelsea - Manchester City 12 desember Chelsea fær topplið Manchester City í heimsókn og það er ljóst að Chelsea-liðið má alls ekki tapa þessum leik ef það ætlar ekki að missa City-menn of langt á undan sér.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira