Real Madrid með hæstu ársveltuna - sjö ensk lið á topp 20 listanum Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 10. febrúar 2011 11:00 Jose Mourinho er knattspyrnustjóri Real Madrid á Spáni. Nordic Photos/Getty Images
Spænska liðið Real Madrid er með mestu ársveltu allra fótboltaliða heims og Barcelona kemur þar rétt á eftir í úttekt sem endurskoðunarfyrirtækið Deloitte gerði. Eignir og skuldir eru ekki í þessum útreikningnum Deloitte en af 20 efstu liðunum á þessum lista eru 7 lið úr ensku úrvalsdeildinni. Athygli vekur að Manchester City fer úr 20. sæti í það 11. þrátt fyrir að liðið sé ekki í Meistaradeild Evrópu. Ársvelta Real Madrid er um 67 milljarðar kr. eða 359 milljón pund. Man City er talið vera ríkasta fótboltalið heims en ársvelta liðsins var um 23 milljarðar kr. á síðasta rekstrarári, 2009-2010 en til samanburðar var ársvelta liðsins 2008-2009 um 16,2 milljarðar kr. Alan Switzer, talsmaður Deloitte,, sagði í gær að þrátt fyrir að eigendur Man City væru með gríðarlega sterkt bakland kæmi það ekki fram í þessum tölum. Félagið hefði gert ýmsa samstarfssamninga víðsvegar um heiminn sem tryggði liðinu meiri veltu en áður. Staða Arsenal á þessum lista er góð en félagið hefur aukið umsvif sín umtalsvert eftir að félagið fékk nýjan heimavöll - Emirates Stadium. Liðið er á sama stað miðað við töfluna í fyrra, í fimmta sæti, með ársveltu upp á um 42 milljarða kr. Fyrir áratug var Arsenal í 13. sæti á þessum lista. Liverpool fellur um eitt sæti á þessum lista og er liðið í áttunda sæti með um 35 milljarða kr. ársveltu. Switzer segir að staða liðsins á þessum lista muni ekki breytast mikið ef ekki verði byggður nýr heimavöllur fyrir Liverpool þar sem fleiri áhorfendur kæmust á heimaleikina.20 efstu á lista yfir mestu ársveltu fótboltafélaga 2009-2010: 1. Real Madrid, Spánn (359 milljónir punda/ 67.1 milljarðar kr.) 2. Barcelona, Spánn (326 milljónir punda/ 61 milljarðar kr.) 3. Manchester United, England (286 milljónir punda / 53.4 milljarðar kr.) 4. Bayern München, Þýskaland (265 milljónir punda / 49.5 milljarðar kr.) 5. Arsenal, England (224 milljónir punda / 41.8 milljarðar kr.) 6. Chelsea, England (210 milljónir punda / 39.3 milljarðar kr.) 7. AC Milan, Ítalía (193 milljónir punda / 36.1 milljarðar kr.) 8. Liverpool, England (185 milljónir punda / 34.6 milljarðar kr.) 9. Inter, Ítalía (184 milljónir punda / 34.4 milljarðar kr.) 10. Juventus, Ítalía (168 milljónir punda / 31.4 milljarðar kr.) 11. Manchester City, England (125 milljónir punda / 23.4 milljarðar kr.) 12. Tottenham, England (120 milljónir punda / 22.4 milljarðar kr.) 13. Hamburger SV, Þýskaland (120 milljónir punda / 22.4 milljarðar kr.) 14. Lyon, Frakkland (120 milljónir punda / 22.4 milljarðar kr.) 15. Marseille, Frakkland (116 milljónir punda /21.7 milljarðar kr.) 16. Schalke, Þýskaland (115 milljónir punda / 21.5 milljarðar kr.) 17. Atletico Madrid, Spánn (102 milljónir punda /19.1 milljarðar kr.) 18. Roma, Ítalía (101 milljónir punda / 18.8 milljarðar kr.) 19. Stuttgart, Þýskaland (94 milljónir punda / 17.6 milljarðar kr.) 20. Aston Villa, England (90 milljónir punda /16.8 milljarðar kr.)
Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Ungverjaland 23-24 | Ísland fer með tvö stig í millirðil Sport Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Utan vallar: Ég get ekki meir Handbolti „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ Handbolti Mikil trú á íslenskum sigri meðal stuðningsmanna Íslands Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti Átján ára orðin næstfljótust í sögu Íslands Sport Færeyingar úr leik og Danir stigalausir í milliriðil Handbolti City fékk skell í Noregi Fótbolti Fleiri fréttir Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Félagsfærni og persónuleiki skiptir miklu máli þegar Tuchel velur HM-hópinn Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Engin mistök þegar „rangstöðumark“ Wirtz var dæmt gilt Sjá meira