Óku inn í hóp og drápu þrjá 11. ágúst 2011 00:15 Tariq Jahan heldur uppi mynd af Haroon 21 árs gömlum syni sínum sem lést þegar bíl var ekið inn í hóp fólks í Birmingham. Hann biðlaði til ófriðarseggja að láta af ofbeldinu.
Í gegnum Eldinn Óeirðaseggur í Liverpool við logandi vegartálma. Talsverðar róstur voru þar í gær þar sem um 200 ungmenni köstuðu grjóti að lögreglu. Fréttablaðið/AP Þrír menn létust í óeirðum í Birmingham aðfaranótt miðvikudags. Mennirnir, sem voru á aldrinum 20 til 31 árs, voru í hópi fólks sem reyndi að verja verslanir í hverfi sínu fyrir þjófum þegar bíl var ekið á þá. Ökumaðurinn flúði af vettvangi en maður er nú í haldi lögreglunnar grunaður um að hafa valdið dauða mannanna. Atvikið er rannsakað sem morðmál. Tariq Jahan, faðir eins hinna látnu, bað um að ekki yrði gripið til hefnda vegna dauða mannanna og hvatti ribbalda á götum Bretlands til þess að hætta ólátum og snúa til síns heima. Lítil sem engin mótmæli voru í London á þriðjudagskvöld, en sextán þúsund lögreglumenn voru á götum úti í borginni. Það er tæplega þrefalt meira en kvöldin á undan, þegar mikil ólæti voru víðs vegar um borgina. Einnig var tiltölulega rólegt í höfuðborginni í gærdag en nokkur ólga var enn í borgum víða um landið. Dómstólar í London voru opnir fram eftir kvöldi í gær til þess að hægt væri að leiða alla þá sem hafa verið ákærðir fyrir dómara. Um tólf hundruð manns hafa verið handteknir vegna óeirða í Bretlandi, þar af um 800 í London. Meðal þeirra sem komu fyrir rétt í London var ellefu ára gamall drengur, sem játaði að hafa stolið úr verslun Debenhams í óeirðunum. Hann eyddi nóttinni á undan í fangaklefa þrátt fyrir ungan aldur, en mun koma fyrir ungmennarétt í lok mánaðarins. Hann er nú í útivistarbanni frá klukkan sex á kvöldin til sex á morgnana. Ólætin voru mest í Birmingham, Manchester og Liverpool á þriðjudagskvöldið auk þess sem lítilsháttar átök urðu í Leicester, Wolverhampton, West Bromwich, Bristol, og Gloucester. Bretar munu ekki láta „hræðslumenningu“ stjórna götunum, sagði David Cameron forsætisráðherra í gær. Hann sagði að gripið yrði til allra ráða til að koma á lögum og reglu á ný. „Ekkert er út af borðinu,“ sagði hann. Meðal annars hefur verið rætt um að nota háþrýstivatnsbyssur til að dreifa fjöldanum, en slíkt hefur aldrei verið notað í Bretlandi. Niðurskurður ríkisstjórnarinnar hefur verið gagnrýndur í tengslum við óeirðirnar en lögreglan á að skera mikið niður á næstu árum og fækka lögreglumönnum um sextán þúsund fyrir árið 2015. Boris Johnson borgarstjóri í London skoraði á ríkisstjórnina að endurskoða áætlanir sínar. thorunn@frettabladid.is, thorgils@frettabladid.is
Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Fleiri fréttir Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Sjá meira