Innlent

Bað um á­lit lög­reglu á gæðum fíkni­efna

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Maðurinn kom með fíkniefnin á lögreglustöðina í Flatahrauni.
Maðurinn kom með fíkniefnin á lögreglustöðina í Flatahrauni. Vísir/vilhelm

Maður gekk inn á lögreglustöðina í Hafnarfirði og óskaði eftir efnagreiningu á fíkniefnum sem hann hafði í fórum sér. Hann var í kjölfarið handtekinn fyrir vörslu á fíkniefnum.

Að sögn lögreglu var maðurinn hræddur um að sér hefðu verið seld léleg fíknefni. Vildi hann fá lögreglu til að komast til botns í þessu.

Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort einhver niðurstaða hafi fengist hvað gæði fíkniefnanna varðar en hann var allavega kærður fyrir meðferð þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×