Enski boltinn

Glazer-fjölskyldan er ekki að fara að selja Man. United til Katar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Glazer-fjölskyldan.
Glazer-fjölskyldan. Mynd/Nordic Photos/Getty
Forráðamenn Manchester United hafa gefið það út að félagið sé ekki til sölu en samkvæmt fréttum í sunnudagsblöðunum í Bretlandi þá átti félagið að vera í viðræðum við fjárfestingafélag frá Katar, Qatar Holding, um að kaup á enska félaginu.

Qatar Holding hefur verið að ryðja sér til rúms í Englandi en félagið keypti Harrods-verslunarkeðjuna á síðasta ári. Fyrirtækið er rekið af Sheik Hamad bin Jassem bin Jabr Al Thani, forsætisráðherra Katar.

Amerísku eigendur Manchester United áttu samkvæmt fréttum í morgun að vera að byrjaðir í viðræðum við þetta fjárfestingafélag frá Katar en talsmaður félagsins sagði í dag að engir aðilar höfðu leitað eftir viðræðum enda væri það til lítils því félagið sé ekki til sölu.

Glazer-fjölskyldan hefur átti United síðan árið 2005 en núverandi eigendur eru mjög óvinsælir meðal stuðningsmanna Manchester United enda búnir að skuldsetja félagið mjög mikið. Glazer-fjölskyldan keypti United fyrir 790 milljónir punda á sínum tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×