Manchester City rúllaði yfir Norwich - Balotelli skoraði með öxlinni Stefán Árni Pálsson skrifar 3. desember 2011 00:01 Mynd/Nordic Photos/Getty
Manchester City tók á móti Norwich á Etihad vellinum í Manchester og unnu heimamenn sannfærandi sigur, 5-1. Kun Agüero skoraði fyrsta mark leiksins eftir rúmlega hálftíma leik, en þá fékk hann fínu sendingu inn í teig frá Micah Richards, snéri sér í nokkra hringi og skaut síðan boltanum bókstaflega í gegnum nokkra varnarmenn og í netið. Ótrúlegt mark hjá þessum snjalla Argentínumanni. Strax í upphafi síðari hálfleiksins skoraði Manchester City annað skrautlegt mark, en Samir Nasri átti fyrirgjöf lengst utan af velli sem endaði í netinu. John Ruddy, markvörður Norwich misreiknaði boltann og fékk á sig þetta klaufalega mark. Heimamenn komust síðan þremur mörkum yfir þegar tuttugu mínútur voru eftir af leiknum en þar var að verki Yaya Touré sem lagði boltann snyrtilega í fjærhornið alveg óverjandi fyrir John Ruddy í marki gestanna. Norwich náði að minnka muninn tíu mínútum fyrir leikslok þegar Steve Morison skallaði boltann í netið. Mario Balotelli skoraði síðan fjórða mark Manchester City rétt fyrir leikslok, en boltinn barst til hans á marklínunni og Ítalinn ákvað að koma boltann í netið með öxlinni. Ótrúlegur karakter hann Mario Balotelli. Þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma skoraði Adam Johnson fimmta mark City í leiknum og um var að ræða algjört rúst að hætti þeirra bláklæddu. Manchester City heldur því enn í toppsætið í deildinni með 38 stig, sjö stigum á undan næsta lið. Norwich er í tíunda sæti deildarinnar með 16 stig.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira