Steve Kean þakklátur Sir Alex Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2011 17:30 Steve Kean. Mynd/Nordic Photos/Getty
Steve Kean, stjóri Blackburn, hefur fengið slæma meðferð hjá stuðningsmönnum félagsins í kjölfar slæms gengis liðsins og hann er sérstaklega þakklátur Sir Alex Ferguson, stjóra Manchester United, fyrir að hafa haft samband og stappað í hann stálinu eftir tapleikinn á móti Bolton á dögunum. Skotarnir Kean og Ferguson mætast með lið sína á Gamlársdag en Sir Alex Ferguson heldur þá upp á sjötugsafmælið sitt. Ferguson hafði samband við Kean efir að Blackburn tapaði mikilvægum leik á móti Bolton fjórum dögum fyrir jól en það var þriðja tap liðsins í röð á móti liðum í neðri hlutanum og útlitið var allt annað en bjart eftir það tap. „Sir Alex skildi eftir löng skilaboð og ég hringdi í hann til baka. Við töluðum lengi saman og ég met hans stuðning mikils. Hann er heldur ekki sá eini sem hefur haft samband," sagði Steve Kean en Blackburn er enn á botninum þrátt fyrir jafntefli við Liverpol á Anfield í síðasta leik. Kean hrósaði Sir Alex líka mikið. „Eldmóður og löngun Sir Alex er innblástur fyrir alla yngri stjóra. Það er ótrúlegt hvað hann leggur á sig og ferðast mikið. Hann er á Meistaradeildarleik, varaliðsleik og svo sérðu hann líka á öðrum leikjum. Ég þekki vinnusemi hans vel og það er ótrúlegt að sjá hann halda svona lengi út á þessu getustigi, búa til hvert liðið á fætur öðru og halda alltaf áfram að vinna," sagði Kean.
Mest lesið Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna fyrir oddaleik gegn Tindastól Körfubolti Faðir leikmanns Grindavíkur gagnrýnir liðið: „Fyrir neðan allar hellur“ Körfubolti Saka skaut Arsenal áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Fótbolti Uppgjör: Njarðvík - Grindavík 83-72 | Njarðvíkingar sigldu í úrslitaeinvígið Körfubolti Mamma fór inn á völlinn og sparkaði í þrettán ára strák Sport Uppgjörið: ÍBV 23-25 Valur | Valskonur einum sigri frá Íslandsmeistaratitli Handbolti Óhugnanlegt atvik á Brúnni Enski boltinn Grindvíkingar valda vonbrigðum og Stjarnan líklega án Seth LeDay Sport Þorleifur: Ég verð ekki með liðið á næsta ári Körfubolti Segja að Alfreð og félagar ættu að ráða Solskjær Fótbolti Fleiri fréttir Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Sjá meira