Tevez væntanlegur aftur til Englands á næstum dögum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. nóvember 2011 12:15 Carlos Tevez í leik með Manchester City. Nordic Photos / Getty Images
Enska dagblaðið The Guardian staðhæfir í dag að Carlos Tevez sé aftur væntanlegur til Englands innan fárra daga eftir að hafa farið í leyfisleysi til Argentínu fyrir tæpum tveimur vikum síðan. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur Tevez ekki í hyggju að biðja Roberto Mancini, stjóra Manchester City, afsökunar en það hefur gengið á ýmsu hjá þeim tveimur síðustu vikur og mánuði. Tevez lýsti því yfir fyrr á þessu ári að hann vildi fara frá félaginu þar sem hann væri óánægður í Manchester. Þó tókst ekki að selja hann í sumar og fékk hann lítið að spila í haust og yfirleitt notaður sem varamaður í leikjum City. Svo neitaði hann að koma inn á sem varamaður í leik með City í Meistaradeild Evrópu og sagði Mancini eftir leikinn að Tevez myndi aldrei spila undir hans stjórn hjá félaginu á ný. Tevez var vikið tímabundið frá störfum og sektaður um tveggja vikna laun. Eftir það sagði Mancini að Tevez ætti möguleika á að fá að spila á ný ef hann myndi bijðast afsökunar. En þess í stað ákvað Tevez að fara til Argentínu, án leyfis félagsins, þegar að landsleikjafríið hófst fyrir tæpum tveimur vikum. Mancini sagði svo fyrir helgi að hann efaðist um að Tevez myndi spila aftur með félaginu. Talið er langlíklegast að hann fari annað í janúar og hefur hann helst verið orðaður við AC Milan og Inter á Ítalíu. Þó er ekki hægt að útiloka að hann gangi til liðs við annað félag í Englandi. Þá er einnig talið í myndinni að hann fari til brasilíska liðsins Corinthians, sem hann var næstum genginn til liðs við í sumar.
Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Fótbolti „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Körfubolti Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Fótbolti Fleiri fréttir Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Sjá meira