Þriðja 1-1 jafnteflið í röð hjá Chelsea - Torres fékk að spila allan leikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. desember 2011 12:30 Mynd/Nordic Photos/Getty
Chelsea er að missa af lestinni í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-1 jafntefli á heimavelli á móti Fulham. Fulham tapaði 5-0 á heimavelli á móti Manchester United í leiknum á undan. Chelsea er tíu stigum á eftir toppliði Manchester City og átta stigum á eftri United sem spila bæði seinna í dag. Þetta er þriðja 1-1 jafntefli Chelsea í röð en liðið hafði einnig gert jafntefli við Wigan og Tottenham í leikjunum á undan. Andre Villas-Boas leyfði Fernando Torres að spila allar 90 mínúturnar en það dugði ekki til að koma Spánverjanum í gang. Fyrri hálfleikurinn var í daufara lagi og hvorugu liðinu tókst að skapa sér meira en hálffæri. Það þurfti hinsvegar ekki að bíða lengi eftir marki í seinni hálfleiknum. Juan Manuel Mata kom þá Chelsea í 1-0 á 47. mínútu með góðu skoti úr teignum eftir að boltinn hafði hrokkið til hans frá Fernando Torres. Það tók Fulham ekki langan tíma að jafna leikinn en þar var að verki Clint Dempsey á 56. mínútu. Bryan Ruiz fór illa með Ashley Cole og gaf fyrir þar sem að Dempsey var á undan þeim John Terry og Petr Cech í markteignum. Dæmigert mark fyrir slakan varnarleik Chelsea á tímabilinu. Chelsea náðu upp þó nokkurri pressu á lokamínútum leiksins ekki síst eftir að Didier Drogba kom inn á sem varamaður en David Stockdale varði hvað eftir annað frábærlega í marki Fulham.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira