Mourinho vill til Englands á ný Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 26. desember 2011 16:00 Mourinho á góðri stund í Madríd MYND:NORDICPHOTOS/GETTYS
Jose Mourinho þjálfari Real Madrid segir að eftir að hann hætti með spænska stórliðið ætli hann að taka við liði á Englandi á nýjan leik. Portúgalinn segist ánægður í starfi sínu hjá Real Madrid en "ástríða mín er á Englandi," sagði Mourinho í viðtali við Rás 4 hjá breska ríkisútvarpinu BBC í dag. "Mitt næsta skref er að snúa aftur [til Englands]. Finnið fyrir mig félag eftir tvö ár," sagði Mourinho á léttu nótunum. Mourinho átti frábæru gengi að fagna með Chelsea. Hann yfirgaf félagið 2007 eftir að hafa unnið deildina í tvígang, enska bikarinn og deildarbikarinn. Þaðan fór hann til Inter þar sem hann landaði þrennunni, ítalska meistaratitlinum, bikarnum og Meistaradeildinni. Nú situr Real Madrid á toppi spænsku deildarinnar þremur stigum á undan Barcelona. "Ég tel þetta vera stærsta félagið í sögu knattspyrnunnar. Ég vildi ekki missa af tækifærinu á að vinna hér," sagði Mourinho um Real Madrid. "Næsta skref mitt er að fara aftur til Englands og starfa þar í lengi." Mourinho hefur löngum verið orðaður við framkvæmdarstjórastöðuna hjá Manchester United eftir að Sir Alex Ferguson hættir. Hann gaf því byr undir báða vængi sumarið 2009 þegar hann var stjóri Inter. "Ég myndi íhuga að taka við Manchester United en United verður að segja til um hvort félagið vilji ég taki við liðinu af Sir Alex Ferguson eða ekki. Ef liðið vill það þá er það klárt mál." Ekkert fararsnið er hins vegar á Sir Alex. "Það er erfitt fyrir mig að segja hvenær starfið verið laust. Það verður heilsa mín sem stjórnar því. Ég mun halda áfram þar til ég bý ekki lengur yfir þeirri orku sem ég hef alla tíð búið yfir," sagði Ferguson fyrr á árinu.
Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Verður áfram í Þýskalandi Fótbolti Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Vonarstjarna Börsunga seld til Frakklands Fótbolti Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast Íslenski boltinn Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Íslenski boltinn Heimsmeistari hleypur Laugaveginn Sport Íslensk dóttir á heimsleikunum í fyrsta sinn í þrjú ár Sport Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Körfubolti Fleiri fréttir Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Sjá meira