Mikil pressa á Andy Carroll Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. febrúar 2011 18:15 Andy Carroll. Nordic Photos / Getty Images
Félagsskipti Andy Caroll frá Newcastle til Liverpool hafa vakið mikla athygli enda ekki að ástæðulausu. Verðmiðinn, 35 milljónir punda, gerir Carroll að áttunda dýrasta knattspyrnumanni sögunnar. Það sem helst hefur verið gagnrýnt við kaup Liverpool er að Carroll á enn eftir að sanna sig á stóra sviðinu. Hann hefur ekki spilað heilt tímabil í efstu deild auk þess sem hann hefur spilað innan við einn A-landsleik. Hann spilaði 72 mínútur í tapi Englendinga gegn Frökkum í nóvember síðastliðnum. Enginn annar leikmaður á topp tíu listanum var svo reynslulítill þegar kaup hans fóru fram. Topp tíu listinn yfir dýrustu leikmenn sögunnar, skv. www.goal.com: 1. Cristiano Ronaldo til Real Madrid á 80 milljónir punda 2. Zlatan Ibrahimovic til Barcelona á 60.7 milljónir punda 3. Kaka til Real Madrid á 56 milljónir punda 4. Fernando Torres til Chelsea á 50 milljónir punda 5. Zinedine Zidane til Real Madrid á 45.6 milljónir punda 6. Luis Figo til Real Madrid 37 milljónir punda 7. Hernan Crespo til Lazio á 35.5 milljónir punda 8. Andy Carroll til Liverpool á 35 milljónir punda 9. David Villa til Barcelona á 34.2 milljónir punda 10. Gianluigi Buffon til Juventus á 32.6 milljónir punda Caroll sem er 22 ára er einnig yngsti leikmaðurinn á listanum á tíma félagsskiptana. Næstyngstur var Gianluci Buffon sem var keyptur til Juventus 23 ára árið 2001. Buffon var þá búinn að stimpla sig inn í ítalska landsliðið og aðeins meiðsli höfðu komið í veg fyrir þátttöku hans á stórmóti. Allir hinir leikmennirnir höfðu spilað á stórmóti þegar þeir fluttu sig um set fyrir metfé. Ef litið er á nágranna Caroll á listanum þá Hernan Crespo og David Villa má benda á þau verðlaun sem leikmennirnir höfðu unnið til fyrir félagsskiptin. Crespo fékk silfurverðlaun á ólympíuleikunum 1996 auk þess sem hann vann ítalska bikarinn og UEFA bikarinn með Parma árið 1999. Villa er sem stendur Evrópumeistari og heimsmeistari með Spánverjum og skoraði flest mörk allra í báðum keppnum svo eitthvað sé nefnt. Caroll glímir við meiðsli sem stendur auk þess sem hann stendur í málaferlum við fyrrum umboðsmann sinn. Auk þessa liggur ekki ljóst fyrir hvort Carroll hafi í raun og veru viljað yfirgefa uppeldisfélag sitt Newcastle United. Caroll hefur því um margt að hugsa þessa dagana og verður forvitnilegt að sjá hvernig framherjinn stæðilegi stendur sig í rauðri treyju númer níu hjá Liverpool.
Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Fleiri fréttir Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Sjá meira