Særðir United-menn vilja ná sér aftur á strik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. desember 2011 07:00 Wayne Rooney hefur ekki skorað í átta leikjum í röð.
Alls fara sjö leikir fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og tveir á morgun. Umferðinni lýkur svo á mánudagskvöldið með stórleik Chelsea og Manchester City á mánudagskvöldið. Það vekur reyndar athygli að allir leikir dagsins eru á sama tíma, klukkan 15.00, en þá mun Manchester United freista þess að koma sér aftur á strik eftir vonbrigðin í Meistaradeildinni í vikunni. Þá féll liðið úr leik í keppninni, rétt eins og grannarnir í City. United mætir Wolves í dag en stuðningsmenn liðsins fengu þær slæmu fréttir í gær að Nemanja Vidic, lykilmaður í vörn og fyrirliði liðsins, verður ekki meira með á tímabilinu þar sem hann er með slitið krossband. Arsenal heldur upp á 125 ára afmælið sitt um helgina og mætir Everton á heimavelli. Liðið hefur spilað átta leiki í röð án þess að tapa og Robin van Persie hefur verið sjóðheitur með þrettán mörk í síðustu tíu leikjum sínum. Liverpool tekur á móti Heiðari Helgusyni og félögum í QPR á Anfield í dag en Heiðar hefur sömuleiðis verið öflugur að undanförnu. Hann hefur skorað sex mörk í síðustu sjö deildarleikjum sínum og munu því varnarmenn Liverpool sjálfsagt hafa góðar gætur á kappanum. Á morgun mætir Tottenham liði Stoke á útivelli en fyrrnefnda liðið er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir frábært gengi að undanförnu.
Mest lesið Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Enski boltinn „Gaf frá mér hljóð sem enginn maður á mínum aldri á að gefa frá sér“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Handbolti „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Golf „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Körfubolti Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Handbolti Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Íslenski boltinn Besta sætið: Hættið þessu rugli og fagnið mörkunum ykkar Sport Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Enski boltinn „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Sjá meira