Mancini: Mjög ánægður með að vera á toppnum um jólin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2011 12:30 Sergio Aguero fagnar marki i gær. Mynd/AP
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, getur verið ánægður með sína menn á heimavelli á árinu 2011. Liðið hefur unnið 17 deildarleiki, gert jafntefli og hefur ekki tapað einum einasta leik í ensku úrvalsdeildinni á heimavelli á þessu ári. Manchester City vann 3-0 heimasigur á Stoke í gær og er því áfram með tveggja stiga forskot á nágranna sína í Manchester United. Þetta var 29 heimaleikur liðsins í röð án taps og City-menn hafa tekið öll þrjú stigin í 27 þeirra. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1929 sem City situr í toppsætinu yfir jólin. Stoke átti aldrei möguleika í leiknum og náði ekki einu skoti að marki. Yfirburðir City voru miklir en liðið lét sér nægja tvö mörk frá Sergio Aguero og eitt frá Adam Johnson. „Þetta er það sama og gerist hjá liðum á móti (Manchester) United," sagði Roberto Mancini, stjóri Manchester City, eftir leikinn. „Öll liðin sem spila á móti United mæta hrædd til leiks og þora ekki að sækja á United því liðið er búið að vera topplið í svo lanan tíma," sagði Mancini. „Nú erum við líklega komnir í sömu stöðu. Það er alls ekki slæmt en stundum væri samt skemmtilegra að fá opinn leik þar sem bæði lið reyndu að spila sóknarbolta," sagði Mancini. „Ég er mjög ánægður með að vera á toppnum um jólin. Þetta er góð jólagjöf til stuðningsmanna okkar sem ættu að geta notið jólanna enn frekar en það sem er mikilvægast er að vera þarna í lok tímabilsins. Það verður erfitt," sagði Mancini.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Guðmundur Oddsson látinn Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira