Jafntefli í Lundúnarslag Tottenham og Chelsea Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. desember 2011 14:01 Emmanuel Adebayor fagnar marki sínu í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Tottenham mistókst að saxa á forystu Manchester-liðanna á toppi ensku úrvalsdeildarinnar þar sem liðið gerði jafntefli við Chelsea, 1-1, á heimavelli í kvöld. Tottenham á enn leik til góða á önnur lið í toppbaráttunni en liðið er nú með 35 stig í þriðja sætinu, sjö stigum á eftir United og níu á eftir City. Chelsea hefði með sigri komist upp í þriðja sætið á kostnað Tottenham en er nú með 33 stig í fjórða sætinu. Tottenham byrjaði af miklum krafti í leiknum og uppskar mark strax á áttundu mínútu. Emmanuel Adebayor gerði það af miklu harðfylgi eftir sendingu Gareth Bale frá vinstri kantinum. Það var ekki mikið í spilunum hjá Chelsea þegar að jöfnunarmarkið kom um stundarfjórðungi síðar. Ashley Cole fékk boltann á vinstri kantinum, fékk hann reyndar um leið í höndina, og gaf fyrir markið þar sem Daniel Sturridge var einn á auðum sjó og skoraði næsta auðveldlega. Howard Webb, dómari leiksins ákvað að dæma ekki hendi á Cole sem leikmenn og stuðningsmenn Tottenham voru ekki hrifnir af. En með markinu náði Chelsea að koma sér betur inn í leikinn sem var bæði opinn og skemmtilegur. Tottenham var meira með boltann en Chelsea fékk fleiri og betri færi til að skora sigurmarkið. Tottenham fékk þó líka mjög góð færi, sérstaklega undir lok leiksins, en liðunum virtist einfaldlega fyrirmunað að skora. Besta dæmið um það var þegar að Ramires, miðjumaður Chelsea, fékk frían skalla rétt utan markteigs heimamanna en hann hæfði ekki markið. Niðurstaðan því 1-1 jafntefli í síðasta leik ensku úrvalsdeildarinnar fyrir afar stutt jólafrí. Keppni heldur áfram á mánudag, á öðrum degi jóla.
Mest lesið Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Körfubolti Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn „Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Sport „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Íslenski boltinn Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Íslenski boltinn Fleiri fréttir JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Sjá meira