Grétar Rafn: Erfitt að vera úti í kuldanum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. desember 2011 16:45 Grétar Rafn í leik gegn Fulham fyrr í þessum mánuði. Nordic Photos / Getty Images
Grétar Rafn Steinsson segist í staðarblaðið Bolton News í Englandi ánægður með að hafa fengið tækifæri til að sanna sig á ný í byrjunarliði Bolton. Grétar Rafn átti góðan leik þegar að Bolton vann afar mikilvægan sigur gegn Blackburn fyrr í vikunni en hafði þess fyrir utan lítið komið við sögu nema varamaður á síðustu vikum og mánuðum. Á tíma var Grétar Rafn ansi aftarlega í goggunarröðinni, á eftir þeim Dedryck Boyata, Joe Riley og David Wheater. Grétar Rafn sýndi þolinmæði og ákvað Owen Coyle, stjóri Bolton, að velja hann í liðið á ný í vikunni. „Stjórinn veit hvað hann fær frá mér," sagði Grétar Rafn. „Ég er duglegur og legg allt í sölurnar fyrir liðið. Hann veit að ég er klár í slaginn ef hann vill að ég spili. Ef ekki - þá verð ég að vera fagmaður, halda mér í formi og vera til reiðu þegar kallið svo kemur." Samningur Grétars Rafns við Bolton rennur út í sumar og vonast hann til að ná að sýna að það sé þess virði fyrir félagið að bjóða honum nýjan samning. „Liðið er það sem mestu máli skiptir. Ég vil spila en ég vil að liðinu gangi vel líka. Vonandi fæ ég nógu marga leiki til að sanna að það ég eigi heima hér." Hann segir að það hafi ekki verið auðvelt að sætta sig við að fá ekki að spila. „Það er erfitt að vera úti í kuldanum. Maður vill leggja sig fram fyrir liðið og fólkið sem er annt um félagið." „Sem betur fer sýndi stjórinn mér það traust að leyfa mér að spila í þessum mikilvæga leik [gegn Blackburn] og vonandi gerði ég nóg til að halda sæti mínu í byrjunarliðinu gegn Newcastle á mánudaginn."
Mest lesið „Trúi ekki að ég hafi beðið í 17 ár eftir grænum jakka“ Golf „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Íslenski boltinn Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Golf McIlroy varði Masters-titilinn Golf „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ Íslenski boltinn „Tilfinningin ólýsanleg að sjá boltann í netinu“ Fótbolti Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Íslenski boltinn Mannleg mistök innifalin og karfan góð og gild Körfubolti Brynja og Svíinn fögnuðu eftir magnað kvöld í Sjallanum Sport Fleiri fréttir Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Sjá meira