Newcastle hættir við að kaupa framherja | Pardew vill varnarmann Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 28. desember 2011 19:00 Alan Pardew. Nordic Photos / Getty Images
Ekkert varð af fyrirhuguðum kaupum Newcastle á Modibo Maiga frá Sochaux í Frakklandi og þá segja forráðamenn Montpellier að félagið hafi ekki efni á Olivier Giroud. Báðir eru sóknarmenn en Newcastle ætlaði að kaupa Maiga á sex milljónir punda. Sá er frá Afríkuríkinu Malí en Newcastle hætti við þar sem kappinn á við hnémeiðsli að stríða. „Ég held að við munum ekki kaupa sóknarmann í janúarglugganum eftir að kaupin á Maiga gengu ekki í gegn. Við höfðum lagt mikla vinnu í það mál," sagði Alan Pardew, stjóri Newcastle, við enska fjölmiðla. Newcastle hafði einnig verið orðað við Giroud sem hefur skorað þrettán mörk fyrir Montpellier á tímabilinu. En eigandi félagsins, Louis Nicollin, segir að Newcastle sé of lítið félag fyrir Giroud. „Newcastle? Nei, það er of lítið félag. Arsenal? Það ræðst af því hvort að Arsene Wenger hafi áhuga en Van Persie er þar fyrir," sagði Nicollin. „Og tíu milljónir evra? Nei. Miðað við að hann á tvö ár eftir af samningi sínum mun hann kosta meira en það. Hann er samningsbundinn til 2014 og mun því að minnsta kosti fara á 50-60 milljónir evra." Pardew segir að Newcastle þurfi varnarmann fyrir Steven Taylor sem verður frá vegna meiðsla allt tímabilið. „Við munum skoða það að fá varnarmann í janúar. Við þurfum á öðrum varnarmanni að halda."
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira