Chelsea fyrsta liðið til að vinna Man City í deildinni í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. desember 2011 19:30 Mynd/Nordic Photos/Getty
Frank Lampard kom inn á sem varamaður og tryggði Chelsea 2-1 sigur á toppliði Manchester City á Brúnni í kvöld en þetta var fyrsta tap City-liðsins í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. City er nú "bara" með tveggja stiga forskot á Manchester United og nú er Chelsea komið upp í þriðja sætið, sjö stigum á eftir toppliðinu. Daniel Sturridge var maðurinn á bak við bæði mörk Chelsea í leiknum, það fyrra kom eftir stoðsendingu hans og það síðara úr víti eftir að varnarmaður varði skot Sturridge með hendi. Chelsea lék manni fleiri síðustu 32 mínútur leiksins og nýtti sér það. City-liðið fékk draumabyrjun en Chelsea-menn komu til baka og tryggðu sér sinn fjórða sigur í röð í deild og Meistaradeild. Mario Balotelli fékk tækifærið í byrjunarliðinu og var fljótur að koma Manchester City í 1-0. Hann fékk þá frábæra stungusendingu frá Sergio Aguero, lék á Peter Cech í markinu og skoraði í tómt markið áður en ein og hálf mínúta var liðin af leiknum. Sergio Aguero var næstum því búinn að bæta við marki á 11. mínútu eftir að hafa fengið sendingu frá Balotelli ú skyndisókn en skot hans fór á endanum framhjá eftir smá dans í vítateignum. Raúl Meireles jafnaði metin á 34. mínútu eftir frábæran undirbúning Daniel Sturridge á hægri kantinum. Sturridge fór illa með Gael Clichy og gaf fyrir á Meireles sem skoraði laglega. Gael Clichy fékk að líta sitt annað gula spjald fyrir brot á Ramires á 58. mínútu og var City-liðið því manni færri síðasta hálftíma leiksins. Daniel Sturridge fékk víti á 82. mínútu þegar Joleon Lescott varði skot hans með hendi. Frank Lampard hafði komið inn á sem varamaður á 73. mínútu en steig fram og skoraði af öryggi úr vítinu.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Mest lesið Sveindís Jane til bjargar á síðustu stundu Fótbolti Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enski boltinn Hafþór Júlíus fagnaði tólfta titlinum með því að rífa bolinn af sér Sport Fór holu í höggi í beinni í sjónvarpinu Golf Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Enski boltinn Hákon gaf syni Dagnýjar treyjuna sína Fótbolti Dagskráin: Enski boltinn byrjar og risaleikur í Bestu Sport Japanskur hnefaleikakappi lést eftir bardaga Sport Nunez farinn frá Liverpool Enski boltinn Haaland á skotskónum í sigri Man. City Sport Fleiri fréttir Mo Salah krefur UEFA um svör vegna Palestínu Pele Enska augnablikið: Lærði 200 ný blótsyrði Nunez farinn frá Liverpool De Gea: Mun aldrei gleyma þessum leik Gyökeres byrjaður að skora fyrir Arsenal Enska augnablikið: Mætti sköllóttur á Old Trafford Gerrard: Owen var betri sem táningur en Yamal og Mbappé Albert lagði upp á Old Trafford í síðasta leik United fyrir tímabilið Draumabyrjun Wrexham breyttist í martröð í lokin Isak verður áfram í frystikistunni í fyrsta leik Newcastle Meiðsli Rodri verri en menn héldu Manchester United staðfestir kaupin á Sesko Enska augnablikið: Grætti barnið en var slétt sama Sonur Rooney á hraðri uppleið hjá Man. United Enska augnablikið: Geðsturlun Georgíumannsins Enska augnablikið: 13 ára Hjörvar tók andköf Gjörbreytt framlína Man United með tilkomu Šeško Arsenal tapar fyrstu tveimur leikjum sínum með Gyökeres Maddison frá í að minnsta kosti hálft ár Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Lyon krækir í leikmann Liverpool Partey laus á skilorði Son verður sá dýrasti í sögunni Sjá meira