Þúsundir minnast Havel: Uppáhaldstónlistin hans spiluð í útvarpinu 18. desember 2011 22:00 Þúsundir minntust Halvels í kvöld.
Þúsundir manna minntust Vaclav Havel á Venceslaw torginu í Prag, höfuðborg Tékklands, í kvöld. Havel lést í morgun en hann er þjóðhetja í Tékklandi eftir að hann leiddi flauelsbyltinguna þar í landi árið 1989, sem að lokum batt enda á alræðisstjórn kommúnismans þar í landi. Hann gegndi forsetaembætti Tékkóslóvakíu í þrjú ár frá þeim tíma og var kosinn fyrsti forseti Tékklands árið 1993 eftir að Tékkóslóvakíu var skipt í tvö ríki. Hann var framfarasinnaður maður og leiddi meðal annars landið inn í Evrópusambandið og NATÓ. Fjöldi manna stóðu í biðröð til þess að kveikja á kerti honum til minningar. Þá skrifuðu margir sína hinstu kveðju til Havel og lögðu á minnisvarða um flauelsbyltinguna. Á einum þeirra þakkar landi Havels honum fyrir að færa þjóðinni lýðræðið. Fjöldi ungs fólks var meðal þeirra sem minntust Havel í kvöld. Í viðtali við AP fréttastofuna sagði Barbora Rubova, sem fæddist tveimur árum eftir byltinguna: „Hann lagði hornsteininn að lýðræðinu fyrir okkur hin." Havel var leikskáld. Þá leikstýrði hann kvikmyndinni „Leaving" sem er gerð eftir hans eigin handriti. Tékkneska ríkissjónvarpið mun sýna þá kvikmynd í kvöld honum til heiðurs. Ríkisútvarpið mun svo spila uppáhaldslögin hans. Þess má geta að Havel hafði unun af rokktónlist. Hann var einlægur aðdáandi Frank Zappa og Velvet Underground. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, minntist Havels í dag. Hann sagði leiðtogann hafa hrist í stoðum stórveldis með friðsamlegum aðgerðum. Hann afhjúpaði þá miklu kúgun sem þjóðin stóð frammi fyrir með hættulegasta vopninu af þeim öllum; öflugri forystu. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, minntist einnig Havels, sem var góður vinur hennar. Hún sagði í samtali við Stöð 2 í kvöld að Havel hefði fyrst séð hafið hér á landi.
Tengdar fréttir Vaclav Havel látinn Vaclav Havel, fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Tékklands, lést í nótt. Hann var 75 ára gamall. Havel leiddi flauelsbyltinguna í Tékkóslóvakíu árið 1989 sem batt enda á alræðisstjórn kommúnismans þar í landi. 18. desember 2011 12:00 Vigdís um Havel: Sá hafið fyrst á Íslandi Vaclav Havel, fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Tékklands, lést í morgun, sjötíu og fimm ára að aldri. Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands segir mikinn sjónarsvipti vera að góðum vini. 18. desember 2011 20:00 Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Brotlenti í djúpu gili Innlent Fleiri fréttir Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Sjá meira
Vaclav Havel látinn Vaclav Havel, fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Tékklands, lést í nótt. Hann var 75 ára gamall. Havel leiddi flauelsbyltinguna í Tékkóslóvakíu árið 1989 sem batt enda á alræðisstjórn kommúnismans þar í landi. 18. desember 2011 12:00
Vigdís um Havel: Sá hafið fyrst á Íslandi Vaclav Havel, fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Tékklands, lést í morgun, sjötíu og fimm ára að aldri. Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands segir mikinn sjónarsvipti vera að góðum vini. 18. desember 2011 20:00