Lucas spilar ekki meira á tímabilinu - Aquilani á leiðinni? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. desember 2011 17:15 Lucas er hér borinn af velli í leiknum gegn Chelsea. Nordic Photos / Getty Images
Stuðningsmenn Liverpool fengu slæm tíðindi í dag þegar það var staðfest að Brasilíumaðurinn Lucas Leiva væri með slitið krossband í hné. Hann spilar því ekki meira með liðinu á tímabilinu. Leiva meiddist í leik Liverpool gegn Chelsea í enska deildabikarnum eftir samstuð við Juan Mata, leikmann Chelsea. Rannsóknir leiddu í ljós að krossbandið í vinstra hné væri slitið og þarf hann að fara í aðgerð vegna þessa. Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, hefur þegar kallað Jonjo Shelvey aftur til félagsins en hann var í láni hjá Blackpool. Samkvæmt enskum fjölmiðlum kemur einnig til greina að kalla á Alberto Aquilani til baka úr láni en hann er nú að spila með AC Milan á Ítalíu. Lucas hefur verið einn besti leikmaður Liverpool á tímabilinu en hann var valinn leikmaður ársins fyrir frammistöðu sína á síðustu leiktíð. „Ég er viss um að ég komi sterkari til baka og nái þeim árangri sem mig dreymir um í Liverpool-treyjunni," skrifaði hann á Twitter-síðuna sína í dag. Ekki er ólíklegt að Dalglish muni reyna að kaupa miðjumann til liðsins nú þegar opnað verður fyrir félagaskipti um áramótin.
Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira